Þrír voru hæfari en Þorsteinn Andri Ólafsson skrifar 20. desember 2007 18:06
Þrír umsækendur voru hæfari en Þorsteinn Davíðsson sem Árni Matthiesen, settur dómsmálaráðherra, skipaði í dag dómara við Héraðsdóm Norðurlands eystra og Héraðsdóm Austurlands. Umsækjendur voru fimm. Nefnd sem lögum samkvæmt er falið að kanna hæfi umsækenda fyrir dómsmálaráðherra skipaði umsækjendum í flokka eftir hæfi. Flokkarnir eru óhæfur, hæfur, vel hæfur og mjög vel hæfur. Ragnheiður Jónsdóttir og Þorsteinn Davíðsson voru af nefndinni álitinn hæf. En þeir Guðmundur Kristjánsson, hæstaréttarlögmaður, Halldór Björnsson, aðstoðarmaður hæstaréttardómara og Pétur Dam Leifsson, lektor voru allir álitnir mjög vel hæfir. Það er tveimur flokkum hæfari en Ragnheiður og svo Þorsteinn sem hlaut á endanum stöðuna. Þorsteinn Davíðsson er sonur Davíðs Oddsonar, fyrrverandi forsætisráðherra, og fyrrverandi aðstoðarmaður Björn Bjarnasonar dómsmálaráðherra sem eftilét Árna Mathiesen að skipa fyrrum aðstoðarmann sinn í dómarastöðuna. Nefndin sem vinnur álit á hæfi umsækjenda starfar eftir lögum um dómstóla. Í henni sitja þrír nefndarmenn. Einn skipaður af Hæstarétti, einn af Dómarafélagi Íslands og einn af Lögmannafélagi Íslands. „Það vekur furðu mína að gengið hafi verið framhjá áliti nefndarinnar með þessum hætti," sagði Eggert Óskarsson einn nefndarmanna í samtali við Vísi í dag.
Mest lesið Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Erlent Töldu að ævilöng vesælmennska biði „barnanna á mölinni“ Innlent Erfiður tími þegar dóttirin kom út sem trans Innlent Girnist Panama-skurðinn, Grænland og Kanada Erlent Þau kvöddu á árinu 2024 Erlent Dregur úr vindi en áfram vetrarveður Veður Standa vaktina á jóladag: „Þetta er bara eins og hina dagana“ Innlent Jólakindin Djásn á Stokkseyri Innlent Þak fauk nánast af hlöðu Innlent Mínútu fyrr á ferðinni væri Tómas allur Innlent Fleiri fréttir Töldu að ævilöng vesælmennska biði „barnanna á mölinni“ Jólakindin Djásn á Stokkseyri Standa vaktina á jóladag: „Þetta er bara eins og hina dagana“ Standa vaktina við lokunarpósta á jóladag Flugferðir hafnar að nýju í Keflavík Þak fauk nánast af hlöðu Fagna jólunum í Betlehem í skugga stríðs Hellisheiði og Þrengsli opna ekki fyrr en á morgun Aðeins ein flugvél lent í Keflavík í dag Útköll víða vegna óveðurs Erfiður tími þegar dóttirin kom út sem trans Gott að geta sagt „þú ert hjartanlega velkominn“ Appelsínugular viðvaranir og jólaboð hjá Hjálpræðishernum Á vaktinni við lokunarpósta alla jólanótt Tveir vörðu jólanótt í fangaklefa Gleðileg jól, kæru lesendur Vegir víða um land gætu lokast með litlum fyrirvara Varað við ferðalögum víða um land Margir á síðasta snúningi með jólapakkana Í sumum tilfellum eina hátíðlega stund dagsins Men Tolla komið í leitirnar: „Sannkölluð jólasaga“ Vonskuveður og þau sem eru á síðasta snúningi Fjúgandi hálka í kirkjugörðum Reykjavíkur Stolið hálsmen Tolla dúkkaði upp tuttugu árum síðar Nóg að gera hjá slökkviliðinu í nótt Mette óskaði Kristrúnu til hamingju Aðfangadagur: Hvar er opið og hve lengi? „Skiptir sannleikurinn engu máli?“ Fjölmenni gekk fyrir frið í miðborginni Rútur skildar eftir á Holtavörðuheiði og leiðinni lokað Sjá meira