Enski boltinn

Skallamark Wijnaldum tryggði Liverpool sigurinn í lokaleik ársins | Sjáðu markið

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Mark Gini Wijnaldum nægði Liverpool til sigurs gegn Manchester City í ensku úrvalsdeildinni en leiknum lauk með 1-0 sigri heimamanna.

Eftir sigur Chelsea í dag þurftu bæði liðin á sigrinum að halda til að halda í við Chelsea.

Liverpool byrjaði leikinn af krafti og var mun sterkari aðilinn í fyrri hálfleik. Leikurinn var aðeins nýhafinn þegar Wijnaldum skoraði eina mark leiksins eftir sendingu frá Adam Lallana.

Liverpool var sterkari aðilinn út fyrri hálfleikinn en fengu fá færi.

Leikurinn snerist við í þeim seinni, Manchester City var meira með boltann en náðu ekki að skapa sér nein hættuleg færi.

Lauk leiknum því með naumum en kærkomnum sigri Liverpool en þetta var fjórði sigur liðsins í röð í ensku deildinni.

Liverpool er því áfram sex stigum á eftir Chelsea í öðru sæti en Manchester City er nú komið tíu stigum á eftir Chelsea.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×