Enski boltinn

Svanirnir í botnsætinu um áramótin | Sjáðu mörkin

Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Swansea misstu af tækifæri til þess að saxa á liðin fyrir ofan sig í 0-3 tapi gegn Bournemouth á heimavelli í dag.

Gylfi var í byrjunarliði Swansea að vanda  en liðið er án knattspyrnustjóra þessa dagana eftir að Bob Bradley var sagt upp störfum á dögunum.

Benik Afobe kom Bournemouth yfir á 25. mínútu en Ryan Fraser bætti við öðru marki undir lok fyrri hálfleiks.

Joshua King innsiglaði sigurinn fyrir Bournemouth á 88. mínútu en með sigrinum lyftir Bournemout sér upp í 10. sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×