Enski boltinn

Frakkarnir björguðu Manchester United á heimavelli | Sjáðu mörkin

Frönsku landsliðsmennirnir Anthony Martial og Paul Pogba björguðu þremur stigum fyrir Manchester United á heimavelli í 2-1 sigri á Middlesbrough í ensku úrvalsdeildinni.

Manchester United sem búið var að vinna fjóra leiki í röð fyrir leik dagsins virtist ná forskotinu í fyrri hálfleik en mark Zlatans Ibrahimovic var flautað af.

Grant Leadbitter kom gestunum óvænt yfir á 61. mínútu og setti Manchester United allt púður í sóknarleikinn á seinasta hálftímanum.

Fimm mínútum fyrir leikslok náði Anthony Martial að jafna metin en stuðningsmennirnir voru eflaust enn að fagna þegar sigurmarkið kom.

Var þar að verki dýrasti knattspyrnumaður heimsins, Paul Pogba, með skalla eftir sendingu Juan Mata.

Gestirnir höfðu ekki orku í að bjarga stigi á seinustu mínútunum og lauk leiknum því með 2-1 sigri Manchester United.

Var þetta fimmti sigur liðsins í röð sem situr þó áfram í 6. sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×