Innlent

Helmingurinn ætlar bara að ferðast innanlands í sumar

Mynd Stefán
Um helmingur landsmanna ætlar eingöngu að ferðast innanlands í sumarfríinu

Þriðjungur ætlar bæði að ferðast innan- og utanlands.

Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunar MMR þar sem spurt var hvort Íslendingar ætla að ferðast innanlands eða utan í sumar.

Af þeim sem tóku afstöðu til spurningarinnar sögðust 51,9% ætla eingöngu að ferðast innanlands í sumarfríinu, 28,5% ætla að ferðast bæði innan- og utanlands í sumarfríinu, 9,9% ætla eingöngu að ferðast utanlands og 9,7% sögðust ekki ætla að ferðast neitt í sumarfríinu.

Sjá nánar um könnunina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×