Lífið

Þétt bókað sumar hjá Júníusi

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Unnar Gísli Sigurmundsson, betur þekktur sem Júníus Meyvant, er á tónleikaferð um Danmörku og Þýskaland þessa dagana.
Unnar Gísli Sigurmundsson, betur þekktur sem Júníus Meyvant, er á tónleikaferð um Danmörku og Þýskaland þessa dagana. Mynd/Sigríður Unnur Lúðvíksdóttir
Vestmannaeyingurinn Unnar Gísli Sigurmundsson stimplaði sig rækilega inn á íslenska tónlistarlandakortið þegar hann gaf út smáskífuna „Color Decay“ vorið 2014. Unnar Gísla þekkja margir landsmenn undir listamannsnafninu Júníus Meyvant.

Nú hefur Júníus Meyvant lokið við vinnslu sinnar fyrstu þröngskífu og kallast hún einfaldlega EP. Þröngskífuna vann hann víða með upptökumönnunum Magnúsi Øder Kristinssyni og Finni Hákonarsyni. Auk „Color Decay“ inniheldur EP þrjú önnur lög, þ.m.t. nýjustu smáskífuna „Hailslide“.

Hann er nú farinn í tónleikaferð þar sem hann kemur fram tvennum tónleikum í Danmörku og þrennum í Þýskalandi. Þá eru einnig bókaðir nokkrir tónleikar hér á landi og verður hann til að mynda á Þjóðhátíð í Eyjum um verslunarmannahelgina.

Árið 2014 var gott ár fyrir Júníus Meyvant. „Color Decay“ naut mikilla vinsælda meðal hlustenda Rásar 2 og sömuleiðis var lagið valið lag ársins af dagskrárstjóra KEXP, Kevin Cole. Júníus kom, sá og sigraði á Íslensku tónlistarverðlaununum í ár og fór frá athöfninni með tvenn verðlaun. Annars vegar sem Bjartasta vonin og svo verðlaun fyrir besta lag ársins.

Record Records gefur út og er þröngskífan fáanleg á geisladisk, vínyl og á stafrænum netveitum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×