Lífið

Bað látinn mann um hönd dóttur hans með myndbandi

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Tyler bað Haylee í Róm á Ítalíu.
Tyler bað Haylee í Róm á Ítalíu.
YouTube bloggarinn TribeTyler bað látinn föður kærustu sinnar um leyfi til að giftast henni í myndbandi sem hann birti á YouTube. Myndbandið er afar hjartnæmt og sýnir brot úr lífi Tyler og Haylee Rose, kærustu hans. Eitt brotið er greinilega tekið á Íslandi úr Hallgrímskirkjuturni en parið ferðaðist hingað í maí á þessu ári.

Tyler biður um leyfi systkina Haylee áður en hann biður hana um að giftast sér og áður en hann les texta til föður hennar heitins, Greg Rose. Greg lést á síðasta ári. „Ég mun gera þig stoltan af því að kalla mig son þinn,“ segir Tyler og lofar því að fara vel með dóttur hans.

Manni hlýnar um hjartarætur við að horfa á myndbandið en greinilegt er hversu sterk ástin er milli Tyler og Haylee. Það má sjá hér að neðan og einnig myndbandið úr ferð parsins til Íslands.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×