Rihanna og Benzema enn að rugla saman reytum Stefán Ó. Jónsson skrifar 20. júlí 2015 13:58 Hér má sjá þau Benzema og Rihönnu saman að snæðingi í New York í júní. vísir/twitter
Vonbiðlar landsins þurfa að ganga áfram með grasið í skónum á eftir söngkonunni Rihönnu ef marka má fregnir þess efnis að hún og franska knattspyrnustjarnan Karim Benzema séu enn að rugla saman reitum. Turtildúfurnar hafa verið bendlaðar við hvort annað síðan í fyrri hluta júnímánaðar eftir að sást til þeirra snæðandi saman árbít í New York eftir langa nótt úti á galeiðunni. Þau Benzema og Rihanna fara víst hægt í sakirnar og njóta samverunnar hvort með öðru. Þau eru sögð bera mikla virðingu fyrir þéttri dagskrá hjá hinu og sýni því mikinn skilning að það geti verið tímafrekt að vera fótboltamaður í fremstu röð og einn vinsælasti tónlistarmaður heims.E! greinir þannig frá því að þau séu einnig miklar aðdáendur hvors annars í opinbera lífinu. Rihanna dáist þannig að þeim metnaði sem Benzema hefur fyrir starfi sínu og styðja þau við hvort annað með daglegum símhringingum og smáskilaboðum þegar þau njóta ekki samvista. Vinir söngkonunnar eru þá einnig sagðir leggja blessun sína yfir ástarumleitanir þess franska en þau tvö hafa forðast það að ræða meinta samband þeirra sem heitan eldinn og hafa lítið vilja staðfesta í þeim efnum. Það er bara að vona að samband þeirra reynist farsælla en því sem Rihanna hefur áður fengið að kynnast en eins og frægt er orðið gekk fyrrverandi kærasti hennar, söngvarinn Chris Brown, harkalega í skrokk á henni svo á sá. Benzema hefur þó ekki óflekkað mannorð í ástarmálunum en fótboltamaðurinn var árið 2010 dæmdur fyrir vændiskaup frá stúlku undir lögaldri ásamt félögum sínum í franska landsliðinu.
Mest lesið Skilnaður handan við hornið hjá Kanye og Biöncu Lífið „Fólk í kringum þessa einstaklinga er á nálum“ Lífið Tíu ár af ást: „Sennilega ekki auðvelt með mér“ Lífið Eins og þruma úr heiðskíru lofti Lífið Hafi enn verið hreinn sveinn Lífið Ragnhildur og Hanna Katrín kveðja Búseta Lífið Stjörnulífið: Skvísustælar við bakkann og áminning um óöryggi Lífið Stofnar eigin útgáfu og byrjar í ruslinu Lífið Kemur frá Sýrlandi og syngur á íslensku Tónlist Harry og Meghan séu ekki að skilja Lífið Fleiri fréttir Þreyttur á stefnumótaöppum: „Hvernig fer ég að því að kynnast fólki?“ Gullmoli í Giljalandi Hafi enn verið hreinn sveinn Logi Geirs og Ólafur Ragnar léttir í London Ragnhildur og Hanna Katrín kveðja Búseta Tíu ár af ást: „Sennilega ekki auðvelt með mér“ Harry og Meghan séu ekki að skilja Galið að fræðsla um snípinn sé af skornum skammti Móðir Whitney Houston látin Stofnar eigin útgáfu og byrjar í ruslinu Skilnaður handan við hornið hjá Kanye og Biöncu Vann til verðlauna fyrir götubitann Bergrún Íris og Kolbrún keyptu í Hafnarfirði Fylgst með tímaskeiði í lífi konu sem greinist með krabbamein Gátu ekki talað saman fyrir syngjandi þjónum „Fólk í kringum þessa einstaklinga er á nálum“ Fanney Dóra og Aron gáfu syninum nafn Náði að sættast við bróður sinn fyrir andlátið Stjörnulífið: Skvísustælar við bakkann og áminning um óöryggi Eins og þruma úr heiðskíru lofti Sláturgerð, Sherry og súkkulaði á Hellu Myndaveisla: Eliza Reid og Ásdís Spanó létu sig ekki vanta í Núllið Covidsmitaður Al Pacino var nær dauða en lífi Dolly gefur 135 milljónir vegna Helenu Með húsaflutninga á heilanum Krakkatían: Ber, forsetar og prinsessur Sigmundur og hvolpurinn gleðjast yfir fylgi Miðflokksins Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til „Ég var heppinn. En ekki hann“ „Það er önnur hver gella með í vörunum“ Sjá meira