Lífið

Gengur um og kemur plötunni út

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Birgir Nielsen ásamt Viktori rakara og Viðari Togga en nafn plötunnar er sótt í nafnið á hárlit sem Viktor blandar sérstaklega fyrir hárið á Viðari.
Birgir Nielsen ásamt Viktori rakara og Viðari Togga en nafn plötunnar er sótt í nafnið á hárlit sem Viktor blandar sérstaklega fyrir hárið á Viðari. Mynd/Gunnar Ingi
Trommuleikarinn Birgir Nielsen hefur sent frá sér plötuna Svartur 2 sem er hans fyrsta sólóplata. Hann segir þetta framleiðslu beint frá býli og er hann að dreifa henni þessa dagana. „Þetta er svona beint frá býli framleiðsla og ég geng um og er að koma plötunni út sjálfur,“ segir Birgir, sem er líklega best þekktur fyrir að slá taktinn með hljómsveitum á borð við Land og syni, Vini vors og blóma og Klaufana svo nokkrar séu nefndar.

Hann er ánægður með viðtökurnar sem platan hefur fengið. „Maður stendur á eigin fótum með þetta og þetta er vissulega nýtt fyrir manni. Þessu eru vel tekið og Eyjahjartað slær með manni. Fólk hefur komið til mín og spurt hvort þetta sé 40 mínútna trommusóló eða þjóðhátíðarlög sem er ekki reyndin. Lögin mín sjö á plötunni eru fönkaður djass af bestu gerð sem vonandi kemur skemmtilega á óvart,“ segir Birgir alsæll.

Plötu Birgis Nielsen hefur verið vel tekið og hér er hann að árita plötuna í versluninni Sölku í Eyjum.mynd/gunnar ingi
Með honum á plötunni eru hljóðfæraleikarar í fremstu röð, Ásgeir Ásgeirsson og Eðvarð Lárusson á gítar, Haukur Gröndal á saxófón og þverflautu, Steinar Sigurðsson á saxófón og Snorri Sigurðsson á trompet, Kjartan Valdimarsson og Stefán Örn Gunnlaugsson á píanó og sjálfur sér Birgir um trommur og slagverk.

Alls spila fjórir bassaleikarar inn á plötuna, þeir Friðrik Sturluson, Tómas Tómasson, Jóhann Ásmundsson og Georg Bjarnason. „Það er ekki verra að vera með landsliðið í bassaleik á plötunni,“ segir Birgir og hlær.

Hann hefur unnið að plötunni í langan tíma. „Elsta stöffið á plötunni er í hátt í tíu ára gamalt.“

Hann hlakkar til að flytja efni plötunnar á tónleikum og ætlar að halda útgáfutónleika í september á Háaloftinu í Vestmannaeyjum og þá verða einnig tónleikar í Reykjavík og á Akureyri. Platan fæst í Lucky Records og einnig hjá Birgi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×