Lífið

Skrímslið deddaði hálfu tonni og sló heimsmet - Myndband

Stefán Árni Pálsson skrifar
Eddie Hall er greinilega gríðarlega sterkur.
Eddie Hall er greinilega gríðarlega sterkur. vísir
Kraftlyftingarmaðurinn Eddie Hall skráði nafn sitt í sögubækurnar á dögunum þegar hann sló heimsmetið í réttstöðulyftu. Hall gerði sé lítið fyrir og deddaði 500 kílóum í keppninni Europe’s Strongest Man.

Eddie gengur undir nafninu Skrímslið eða „The Beast“ og tók hann hálft tonn upp og öskraði eins og óður maður eftir á.

Eftir að Skrímslið hafði fengið lyftuna löglega lét hann stöngina falla niður og leið nánast yfir þennan magnaða mann en hér að neðan má sjá myndband af heimsmetslyftunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×