Svona verður dagskrá Guðna og Elizu í Danmörku atli ísleifsson skrifar 18. janúar 2017 10:31 Guðni Th. Jóhannesson forseti og Eliza Reid forsetafrú. vísir/ernir
Guðni Th. Jóhannesson forseti og Eliza Reid forsetafrú halda í opinbera heimsókn til Danmerkur í næstu viku, en um er að ræða fyrstu opinberu heimsókn þeirra til útlanda frá því Guðni tók við embætti í sumar. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra verður með í för ásamt opinberri sendinefnd sem í eru fulltrúar mennta- og fræðasamfélags auk embættismanna frá utanríkisráðuneyti og embætti forseta.Hefst með formlegri móttökuathöfn við Amalíuborgarhöll Skrifstofa forsetaembættisins hefur sent frá sér tilkynningu þar sem dagskrá ferðarinnar er útlistuð. Heimsóknin hefst þriðjudaginn 24. janúar með formlegri móttökuathöfn við Amalíuborgarhöll í Kaupmannahöfn og lýkur að morgni fimmtudagsins 26. janúar. „Meðal helstu dagskráratriða 24. janúar eru heimsókn í Jónshús þar sem forseti hittir forsvarsmenn hússins, ræðir við fulltrúa úr fjölbreyttu félagsstarfi Íslendinga í Kaupmannahöfn og skoðar sýningu um Jón Sigurðsson og Ingibjörgu Einarsdóttur, konu hans. Næst heldur forseti í Kristjánsborgarhöll, aðsetur danska Þjóðþingsins, og á þar fund með Lars Løkke Rasmussen forsætisráðherra og situr hádegisverð í boði hans. Þá á forseti einnig fund með forseta þingsins, Piu Kjærsgaard. Frá Kristjánsborgarhöll liggur leiðin í Konungsbókhlöðuna, Svarta demantinn, en þar verður dagskrá helguð handritum og fornsögum. Við það tækifæri afhendir forseti veglega bókagjöf, 700 eintök af nýrri heildarútgáfu Íslendingasagna í danskri þýðingu en það eru allmörg íslensk fyrirtæki sem standa að baki bókagjöfinni. Margrét Danadrottning verður viðstödd þessa dagskrá auk annarra gesta. Um kvöldið býður drottningin forseta og fylgdarliði til hátíðarkvöldverðar í Amalíuborgarhöll. Miðvikudaginn 25. janúar hefst dagskrá forseta með heimsókn í Árnasafn í Kaupmannahafnarháskóla, sem kalla má systurstofnun Árnastofnunar á Íslandi, en þar eru varðveitt þau íslensk handrit úr safni Árna Magnússonar sem ekki var skilað til Íslands, stundaðar fjölþættar rannsóknir á þessum menningararfi og gefnar út vandaðar útgáfur. Þvínæst verður haldið í höfuðstöðvar Dansk Industri við Ráðhústorgið þar sem fulltrúar úr íslensku atvinnulífi kynna starfsemi sína og áherslur á sjálfbærni, hátækni og fullnýtingu hráefna í matvæðaiðnaði. Þessi viðburður er skipulagður af Íslandsstofu. Í sömu byggingu reka dönsk stjórnvöld kynningarmiðstöð um sjálfbærni og umhverfisvernd, The State of Green, og mun forseti skoða hana ásamt Friðriki krónprins. Þá liggur leiðin til Alþjóða hafrannsóknaráðsins þar sem forseti mun kynna sér starfsemi þess og framlag til verndunar hafanna. Í hádeginu býður Kaupmannahafnarháskóli til hringborðsumræðu um þjóðernishyggju og hnattvæðingu þar sem forseti flytur ræðu og tekur þátt í samræðum ásamt hópi danskra fræðimanna og fjölmiðlamanna auk fulltrúa úr sendinefnd Íslands. Síðdegis heimsækja forsetahjón ásamt Friðriki krónprins og Mary krónprinsessu Copenhagen Hospitality School, stóran matreiðslu- og þjónaskóla þar sem margir Íslendingar hafa menntast. Þá liggur leiðin í kynningar- og fræðslumiðstöð Marels á Amager en Marel er, sem kunnugt er, leiðandi fyrirtæki í tækni fyrir matvælavinnslu. Þvínæst heimsækir forseti galleríið Bredgade Kunsthandel og opnar sýningu á verkum íslenskra listamanna sem numið hafa eða starfað í Danmörku. Síðdegis býður forseti Íslands til móttöku til heiðurs Margréti Danadrottningu í Nordatlantens Brygge og lýkur með henni formlegri dagskrá heimsóknarinnar. Auk þess að taka þátt í opinberum viðburðum heimsóknarinnar mun Eliza Reid forsetafrú eiga morgunverðarfund með Mary krónprinsessu 25. janúar og taka í kjölfarið þátt í sérstakri dagskrá með henni. Þær heimsækja leikskóla, sem hefur þótt skara fram úr m.a. með þjálfun í málfærni, og skoða jafnframt höfuðstöðvar alþjóðastofnana Sameinuðu þjóðanna í Danmörku,“ segir í tilkynningunni frá skrifstofu forseta.
Mest lesið Erlendur ferðamaður fannst látinn við Stuðlagil Innlent Ökumaðurinn liðlega tvítugur Innlent Báðu um paramynd og augnabliki síðar var veskið horfið Innlent Öllum sundlaugum í Reykjavík lokað Innlent Sagðist nýlega hafa rætt við löngu látna konu sína Innlent Hlaut lífshættulega áverka vegna stunguárásar Innlent Enn eitt barnið sem dettur ofan í holu Innlent Sigríður Hrönn Elíasdóttir er látin Innlent Réðst á fyrrverandi kærustur og aðstoðarslökkviliðsstjóra Innlent Mikið um dýrðir í Íslandsboðinu í konungshöllinni Innlent Fleiri fréttir Kvíðin í aðdraganda hamfara og spenna í þingheimi Hagstofan biðst velvirðingar og tekur talnaefnið úr birtingu The Guardian fjallar um túrismann sem gleypi íslenska tónleikastaði Erlendur ferðamaður fannst látinn við Stuðlagil Öllum sundlaugum í Reykjavík lokað Hlaut lífshættulega áverka vegna stunguárásar Árekstur á Eyrarbakkavegi Ríkisstarfsmenn ofmetnir um fimm þúsund Báðu um paramynd og augnabliki síðar var veskið horfið Bilun gæti valdið heitavatnsleysi víðar Hæstánægð með Höllu „Við sjáum afleiðingar þess að vinna ekki fyrir ofan fossinn“ Telur að Óli Björn líti svo á að VG hafi kastað stríðshanskanum Stjórnarsamstarfi efnislega lokið? Vongóð um að Ísland fái sæti í mannréttindaráðinu Ökumaðurinn liðlega tvítugur Réðst á fyrrverandi kærustur og aðstoðarslökkviliðsstjóra Telja óstaðbundin störf of kostnaðarsöm Kom skemmtilega á óvart að hitta Margréti Danadrottningu Ríkisstjórnin á valdi „minnsta og veikasta“ flokksins Nú má keyra á nagladekkjum í borginni Sigríður Hrönn Elíasdóttir er látin Enn eitt barnið sem dettur ofan í holu Heitavatnslaust víða í Vesturbænum Sagðist nýlega hafa rætt við löngu látna konu sína Lyfin hjálpi fólki í vandræðum en leysi ekki vandann Mikill viðbúnaður vegna hnífaárásar í nótt Mikið um dýrðir í Íslandsboðinu í konungshöllinni Margir í vandræðum í Kömbunum Greiða atkvæði um verkfall í níu skólum fram á fimmtudag Sjá meira