Stjórn Cintamani hefur gefið félagið upp til gjaldþrotaskipta. Mbl greinir frá og hefur eftir tilkynningu frá stjórninni.
Mbl hefur jafnframt eftir tilkynningunni að rekstur fyrirtækisins, sem selt hefur útivistarfatnað um árabil, hafi verið þungur síðastliðin ár. Áframhaldandi rekstrarhæfi félagsins hafi verið háð frekari fjármögnun sem ekki hafi náðst.
Sjá einnig: Sjá fram á betri tíma eftir mögur ár
Í tilkynningu á vef Íslandsbanka er greint frá því að Cintamani sé nú í söluferli. Allur vörulager fyrirtækisins er auglýstur til sölu, sem og skráð vörumerki félagsins ásamt léninu www.cintamani.is.
„Söluferlið er opið öllum áhugasömum og eru þeir beðnir um að senda fyrirspurnir og tilboð á netfangið fullnustueignir@islandsbanki.is í síðasta lagi þann 3. febrúar 2020. Tekin verður afstaða til tilboða eftir 5. febrúar 2020,“ segir í tilkynningu Íslandsbanka.
Rekstur Cintamani hefur gengið erfiðlega allt frá árinu 2016. Félagið hefur reglulega verið sett í söluferli síðan þá en tilboðum verið hafnað. Fyrirtækið lokaði nýlega verslun sinni í Bankastræti og þá hafði verið tilkynnt um lokun verslana í Smáralind og á Akureyri. Enn voru Cintamaniverslanir opnar á Laugavegi og í Kringlunni.
