Sport

Naumur sigur Blika á botnliðinu

Breiðablik hélt áfram sigurgöngu sinni í 1. deild karla í knattspyrnu í dag eftir nauman sigur á botnliði Völsungs, 3-2 á Kópavogvelli. Gunnar Örn Jónsson, Kári Ársælsson og Hjalti Kristjánsson skoruðu mörk Blika sem leiddu 3-0 í hálfleik. Svo virtist sem Blikar væru farnir í sólbað að svo búnu því gestirnir náðu að minnka muninn í 3-2 með mörkum frá Hermanni Aðalgeirssyni og Andra Val Ívarssyni strax í upphafi síðari hálfleiks. Blikar héldu þó forystunni út leikinn og eru efstir með 29 stig og sigla hraðbyri upp í Landsbankadeildina enda eru 9 stig í þriðja sætið sem KA vermir. Á Siglufjarðarvelli gerðu KS og Víkingur Ólafsvík jafntefli, 1-1.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×