Sport

Sportið í dag: Finnur Freyr, Fjallið, Líney Rut og klefinn hjá KR

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Sportið í dag er á dagskrá Stöðvar 2 Sports alla virka daga klukkan 15:00.
Sportið í dag er á dagskrá Stöðvar 2 Sports alla virka daga klukkan 15:00. vísir/vilhelm

Kjartan Atli Kjartansson og Finnur Freyr Stefánsson mæta ferskir til leiks eftir helgarfrí og bjóða upp á flottan þátt af Sportinu í dag. Að venju hefst þátturinn klukkan 15:00 á Stöð 2 Sport.

Finnur Freyr Stefánsson, sem var ráðinn þjálfari karlaliðs Vals í körfubolta í dag, kemur í heimsókn og fer yfir nýja starfið. 

Hafþór Júlíus Björnsson setti magnað heimsmet um nýliðna helgi og fer yfir það sem og væntanlegan feril hans í hnefaleikaheiminum. 

Líney Rut Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri ÍSÍ, ræðir fjármálin í íþróttaheiminum og svo verður kíkt í búningsklefann hjá Íslandsmeisturum KR í fótbolta og körfubolta. 

Þetta og meira til í Sportinu í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×