Arsenal fyrst í 8-liða úrslitin Sindri Sverrisson skrifar 2. mars 2020 21:30 Sokratis fagnar marki sínu gegn Portsmouth í kvöld. vísir/getty Arsenal átti ekki í neinum vandræðum með að slá út C-deildarlið Portsmouth í 16-liða úrslitum ensku bikarkeppninnar í fótbolta í kvöld. Arsenal vann 2-0 sigur. Gríski miðvörðurinn Sokratis Papastathopoulos kom liðinu yfir rétt fyrir leikhlé og snemma í seinni hálfleik skoraði Eddie Nketiah seinna markið. Spánverjinn Pablo Marí, sem er að láni frá Flamengo í Brasilíu, fékk sitt fyrsta tækifæri með Arsenal í kvöld og lék allan leikinn í vörninni. Það eina sem skyggði á sigur Arsenal var að Lucas Torreira meiddist í fyrri hálfleik og var borinn af velli. Keppni í enska bikarnum heldur áfram annað kvöld þegar Chelsea og Liverpool mætast. Þá mætast einnig Reading og Sheffield United, og West Brom og Newcastle. Enski boltinn
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti