Bíó og sjónvarp

Fyrsta stiklan úr Hvernig á að vera klassa drusla

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ylfa Marín Haraldsdóttir og  Ásta Júlía Elíasdóttir fara með aðalhlutverk í kvikmyndinni.
Ylfa Marín Haraldsdóttir og  Ásta Júlía Elíasdóttir fara með aðalhlutverk í kvikmyndinni.

Kvikmyndin Hvernig á að vera klassa drusla verður frumsýnd 3. apríl næstkomandi. Aðalhlutverkin leika Ásta Júlía Elíasdóttir og Ylfa Marín Haraldsdóttir en þetta mun vera fyrsta kvikmynd þeirra beggja sem þær leika aðalhlutverk í. Aðrir leikarar í myndinni eru Rúnar Vilberg Hjaltason, Konni Gotta, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, Þorsteinn Bachmann, Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Ólafur Elías Harðarson.

Myndin fjallar um vinkonupar sem fer að vinna á sveitabæ yfir sumarið og lenda í allskonar ævintýrum. Þrælvön sveitapía grípur borgarbarn vinkonu sína með sér út á land til að vinna á stórum sveitabæ yfir sumarið.

Það rennur ekki vottur af sveitablóði í vinkonunni og í þokkabót hefur hún fengið nóg af því að vera hlátursefni annarra og fær þar af leiðandi villandi kennslu sveitapíunnar um hvernig á að vera betri, stærri og sterkari útgáfa af sjálfri sér.

Tanja, leikin af Ylfu Marín Haraldsdóttur, er þreytt á að vera ástsjúk og leitar til bestu vinkonu sinnar Karenar, leikin af Ásta Júlía Elíasdóttur, til að fá ráðleggingar hvernig á að vera klassa drusla.

Myndin er fyrsta bíómynd Ólafar í fullri lengd, en áður hefur Ólöf vakið athygli fyrir skemmtilega hnitin kvikmyndastíl í stuttmyndum sínum líkt og Síðasta Sumar og Millenium Lausnir.

Hér að neðan má sjá fyrstu stikluna úr myndinni.

Klippa: Fyrsta stiklan úr Hvernig á að vera klassa drusla





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.