Ronaldo allt í öllu í öruggum sigri á Udinese

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Cristiano Ronaldo frábær í kvöld
Cristiano Ronaldo frábær í kvöld vísir/Getty

Portúgalski snillingurinn Cristiano Ronaldo bar meistara Juventus á herðum sér í kvöld þegar liðið vann öruggan sigur á Udinese í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Eftir hálftíma leik opnaði Ronaldo markareikninginn þegar hann skoraði eftir stoðsendingu Aaron Ramsey og leiddi Juve með einu marki í leikhléi.

Eftir fimm mínútna leik í síðari hálfleik tvöfaldaði Federico Chiesa forystuna eftir góðan undirbúning Ronaldo.

Ronaldo lokaði svo leiknum með öðru marki sínu og þriðja marki Juventus. Udinese tókst að klóra í bakkann á lokamínútu leiksins þegar Marvin Zegelaar skoraði en Paulo Dybala átti engu að síður lokaorðið.

Lokatölur 4-1 fyrir Juventus sem er enn tíu stigum á eftir toppliði AC Milan en meistararnir eiga þó leik til góða.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira