Innlent

Óttast að fuglaflensa berist til Íslands

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Brigitte Brugger, sérgreinadýralæknir hjá Matvælastofnun.
Brigitte Brugger, sérgreinadýralæknir hjá Matvælastofnun. Aðsend

Dýralæknir hjá Matvælastofnun óttast mikla útbreiðslu fuglaflensu í Evrópu og að flensan gæti borist til Íslands um leið og farfuglarnir fara að skila sér aftur til landsins. Fuglaeigendur eru því beðnir um að gera ráðstafanir til að verja fugla sína fyrir smiti frá villtum fuglum með því að viðhafa góðum smitvörnum og forðast að hafa nokkuð í umhverfi fuglahúsa sem laðar að villta fugla.

Dýralæknir hjá Matvælastofnun óttast mikla útbreiðslu fuglaflensu í Evrópu og að flensan gæti borist til Íslands um leið og farfuglarnir fara að skila sér aftur til landsins. Fuglaeigendur eru því beðnir um að gera ráðstafanir til að verja fugla sína fyrir smiti frá villtum fuglum með því að viðhafa góðum smitvörnum og forðast að hafa nokkuð í umhverfi fuglahúsa sem laðar að villta fugla.

Í tilkynningu frá Matvælastofnun kemur fram að fuglaflensa hafi að undanförnu farið eins og eldur um sinu í Evrópu. Stofnunin fylgist því stöðugt með þróun faraldursins og metur áhættu fyrir Ísland. Fuglaeigendur eru því hvattir að huga ávallt vel að smitvörnum og búa sig undir þann möguleika að fyrirskipaðar verði sérstakar smitvarnaráðstafanir.

Brigitte Brugger er sérgreinadýralæknir, sem hefur með heilbrigði og velferð alifugla hjá Matvælastofnun að gera.

„Flensan er mikið á því svæði, sem okkar farfuglar halda sér og það er ákveðið áhyggjuefni og við höfum fylgst með því.  Þetta er skæð flensa fyrir alifugla. Hún hefur þó ekki greinst í fólki og það er talin vera lítil smithætta fyrir það en veiran er smitandi en hún hefur greinst víða á mörgum alifuglabúum,“ segir Brigitte.

Í tilkynningu frá Matvælastofnun kemur fram að fuglaflensa hafi að undanförnu farið eins og eldur um sinu í Evrópu. Stofnunin fylgist því stöðugt með þróun faraldursins og metur áhættu fyrir Ísland.Aðsend

Brigitte reiknar fastlega með því að viðbúnaðarstig á Íslandi verði aukið vegna fuglaflensunnar á næstunni þegar farfuglarnir fara að koma til landsins. Hún hvetur almenning að láta Matvælastofnun vita ef villtir fuglar finnast dauðir á víðavangi og orsök dauða þeirra er ekki augljós,

En er einhver hætta á að flensan geti farið í fólk?

„Það er engin vísbending um það eins og er með þetta afbrigði, sem er að grassera í Evrópu. Þetta hefur ekki greinst í fólki þótt það séu miklar greiningar í alifuglum og villtum fuglum en það er samt sem áður alltaf rétt að gæta smitvarna því fólk er að taka upp dauða fugla, vera að minnsta kosti í hönskum.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×