Kvartað er undan því að vegirnir frá Patreksfirði, Tálknafirði og Bíldudal séu illa farnir vegna stóraukinna þungaflutninga. Megnið af afurðum svæðisins fer með trukkum, meðal annars frá Odda á Patreksfirði.

„Við erum mjög háðir landleiðinni núna þar sem engar skipakomur eru hérna á sunnanverða Vestfirði. Skipakomur þyrftu svo sannarlega að bætast hérna við þar sem framleiðsla á þessu svæði er orðin alveg gríðarlega mikil,“ segir Skjöldur Pálmason, framkvæmdastjóri Odda, í viðtali í fréttum Stöðvar 2.
„Og það er náttúrlega í sjálfu sér alveg galið að flytja þetta allt eftir þjóðvegum landsins, sem eru engan veginn búnir undir þetta, og alls ekki hérna til okkar.“

Bryggjur sem taka við flutningaskipum eru þegar til staðar en áætlað hefur verið að á þessu ári þurfa að flytja 25 þúsund tonn af vörum frá svæðinu.
Þótt endurbætur séu hafnar á þjóðvegum, eins og til dæmis í Gufudalssveit, bendir Skjöldur á að langt sé í að þeim ljúki.
„Við munum hins vegar alltaf skilja eftir hér erfiða fjallvegi, eins og Klettsháls.“

Skjöldur segir að í sínum huga sé langmikilvægast að treysta ferjusiglingar yfir Breiðafjörð með Baldri.
„Hann er algerlega forsendan fyrir því að það sé hægt að stunda hér fiskvinnslu, hvort sem það er lax eða hvítfiskur, í þessari samkeppni. Því að afhendingaröryggið er það sem er númer eitt, tvö og þrjú.
Og það getum við ekki uppfyllt með því að treysta á það að það sé alltaf fært yfir erfiðustu hálsana hérna á leiðinni suður,“ segir framkvæmdastjóri Odda.
Hér má sjá frétt Stöðvar 2: