Fyrstu tilnefninguna til Hönnunarverðlauna Íslands 2020 hlýtur Peysa með öllu eftir Ýrúrarí.
Hér fyrir neðan má lesa rökstuðning dómnefndar:
„Öllum finnst gaman að lífga upp á útlitið, hvers vegna ætti ekki það sama að gilda um peysur sem hafa endað í Rauða Krossinum. Verkefnið Peysa með öllu var frumsýnt á HönnunarMars í júní 2020 og vöktu peysurnar, skreyttar skemmtilegum tilvísunum í pylsur, mikla athygli.
Textílhönnuðurinn Ýr Jóhannsdóttir eða Ýrúrarí nýtti sér peysur frá Rauða Krossinum og glæddi þær lífi með hnyttnum og duttlungafullum hætti þannig að flíkurnar öðluðust alveg nýtt líf eftir allt volkið þar.
Þetta eru flíkur sem oftar en ekki lenda í ruslagámunum meðal annars vegna sósubletta frá þjóðarrétti Íslendinga, pylsu í brauði, sem varð innblástur verkefnisins. Í stað þess að fela blettina urðu þeir uppspretta skemmtilegra textílverka þar sem tómatsósa, sinnepshringir, hlæjandi munnar og fjölbreytilegar tungur fengu að njóta sín. Innan um öll uppskrúfuðu tískuhugtökin sem reiða sig á alvarlegt inntak og framsetningu veitti þetta verkefni heillandi og fjörlegt mótvægi, opnar leið til að glæða tískuna lífi með húmor og gleði.“

Um verkefnið:
Peysa með öllu var frumsýnt á HönnunarMars 2020. Í verkefninu Peysa með öllu, vinnur textílhönnuðurinn Ýr Jóhannsdóttir, eða Ýrúrarí, með óseljanlegar peysur úr fatasöfnun Rauða krossins á Íslandi. Peysurnar hafa flestar orðið fyrir hversdagslegum mannlegum óhöppum sem skilja eftir sig varanleg ummerki og hafa þar af leiðandi endað í fatasöfnuninni. Í ferlinu að því að laga og umbreyta peysunum fer Ýr óhefðbundnar leiðir þar sem sósublettir fá nýtt útlit, götóttar peysur fá fleiri göt með nýjum gildum og hnökrar, lykkjuföll, slettur og flekkir heyra sögunni til í nýrri einstakri flík.
Um hönnuðinn:
Textílhönnuðurinn Ýr Jóhannsdóttir útskrifaðist með BA gráðu í textíl hönnun frá Glasgow School of art árið 2018 en hefur unnið með peysuformið og prjón síðan 2012. Ýr er þekkt fyrir mikla leikgleði og fyndni í bland við hagnýtni í verkum sínum og hafa peysurnar hennar vakið verðskuldaða athygli hérlendis og erlendis. Undanfarin ár hefur efnisval í verkefnum Ýrar færst í sjálfbærari áttir og þema í sköpunarferlinu gjarnan með undirliggjandi hugleiðingum um vitundarvakningu á textílneyslu.
Hér fyrir neðan má sjá kynningu fyrstu tilnefningunni til Hönnunarverðlauna Íslands 2020. Myndbandið er framleitt af Blóð studio.
Beina sjónum að því besta
Hönnunarverðlaun Íslands varpa ljósi á mikilvægi og gæðum íslenskrar hönnunar og arkitektúrs, enda er vægi hönnunar í menningu, samfélagi og viðskiptalífi alltaf að aukast.
Hönnunarverðlaun Íslands beina sjónum að því besta sem gert er á sviði hönnunar og arkitektúrs á Íslandi um leið og einstaka hönnuðum eða hópum hönnuða er veitt mikilvæg viðurkenning. Verðlaunin eru veitt hönnuði, arkitekt, hönnunarteymi eða stofu fyrir framúrskarandi ný verk; einstakan hlut, verkefni eða safn verka. Hönnuðir þurfa að vera félagar í einu af aðildarfélögum Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs eða fagmenn á sínu sviði til að hljóta verðlaunin. Ný verk eru verk sem lokið hefur verið við á síðustu tveim til þremur árum fyrir afhendingu verðlaunanna.
Milljón króna peningaverðlaun
Við val á verðlaunahafa er haft í huga að verið er að leita að framúrskarandi verki, eða safni verka, sem standa á sem fulltrúi þess besta sem gert er á sviði hönnunar og arkitektúrs. Verkið/verkin þurfa að vera einstök, fela í sér frjóa hugsun, snjalla lausn, vandaða útfærslu og fagmennsku í vinnubrögðum. Hönnunarverðlaun Íslands eru peningaverðlaun að upphæð 1.000.000 krónur, sem hafa verið veitt af ráðherra ferðamála, iðnaðar- og nýsköpunar.
Besta fjárfesting í hönnun er viðurkenning sem veitt var í fyrsta sinn 2015. Fyrirtæki sem eiga þess kost að hljóta viðurkenninguna Besta fjárfesting í hönnun hafa hönnun og arkitektúr að leiðarljósi frá upphafi verka til að auka verðmætasköpun og samkeppnishæfi. Öll fyrirtæki sem starfa á Íslandi koma til greina.
Miðstöð hönnunar og arkitektúrs stendur að verðlaununum, í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands, Listaháskóla Íslands, Landsvirkjun, Íslandsstofu og Samtök iðnaðarins.