Drangar eftir Studio Granda tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2020 Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 20. janúar 2021 08:31 Drangar eftir Studio Granda hlýtur tilnefningu til Hönnunarverðlauna Íslands fyrir árið 2020. Nombre del Proyecto Sjálfbærni, endurnýting, náttúra og vellíðan eru lykilorðin þegar kemur að tilnefningum til Hönnunarverðlauna Íslands árið 2020. Tilnefningarnar verða allar tilkynntar hér á Vísi.
Aðra tilnefninguna til Hönnunarverðlauna Íslands 2020 hlýtur verkefnið Drangar eftir Studio Granda. Hér fyrir neðan má lesa rökstuðning dómnefndar: „Drangar er metnaðarfullt hönnunarverkefni arkitektastofunnar Studio Granda og afar vel heppnuð birtingarmynd aðkallandi viðfangsefnis arkitekta i nútímasamhengi, endurhugsun og endurnýting gamalla bygginga. Hér er sérstaklega vel útfærð breyting á gömlu sveitabýli og útihúsum í gisthús fyrir ferðamenn. Veðraðar byggingarnar fá að njóta sín og halda útlitslegu yfirbragði með sterkri vísun í sögu og samhengi, en um leið er heildarmynd staðarins styrkt og efld. Dæmi um það er samspil útveggja gistihússins þar sem gömlu veggirnir standa hráir og opnir, án glugga og hurða og mynda áhrifaríkt samspil skugga og takts við nýja veggi. Innra rýmið markast af hlýlegri eik og litum dregið saman milli bygginga og rýma með hlýrri notkun timburs og lita. Mismunandi litatónar og áferð lita eru vísun í fyrri virkni býlisins, t.d. í lit nautgripa eða gljástig vinnuvéla. Öll efnisútfærsla er sérlega vönduð og tengir rýmin saman í umlykjandi ramma um lífið innan byggingarinnar. Verkið er mikilvægt fordæmi og viðmið í ljósi vaxandi fjölda bygginga, ekki síst á landsbyggðinni, sem kalla á endurskilgreiningu og endurbyggingu vegna aldurs og annars konar nýtingar.“ Nombre del ProyectoNombre del ProyectoNombre del Proyecto Um verkefnið: Drangar er nýtt gistiheimili byggt ágömlum grunni, staðsett á Snæfellsnesi. Hannað af Studio Granda. Um arkitekta Studio Granda er arkitektastofa, stofnuð af þeim Margréti Harðardóttur & Steve Christer árið 1987. Studiogranda.is Hér fyrir neðan má sjá kynningu á annarri tilnefningunni til Hönnunarverðlauna Íslands 2020. Myndbandið er framleitt af Blóð studio. Klippa: Tilnefningar til Hönnunarverðlauna Íslands 2020 - Studio Granda Beina sjónum að því besta Hönnunarverðlaun Íslands varpa ljósi á mikilvægi og gæðum íslenskrar hönnunar og arkitektúrs, enda er vægi hönnunar í menningu, samfélagi og viðskiptalífi alltaf að aukast. Hönnunarverðlaun Íslands beina sjónum að því besta sem gert er á sviði hönnunar og arkitektúrs á Íslandi um leið og einstaka hönnuðum eða hópum hönnuða er veitt mikilvæg viðurkenning. Verðlaunin eru veitt hönnuði, arkitekt, hönnunarteymi eða stofu fyrir framúrskarandi ný verk; einstakan hlut, verkefni eða safn verka. Hönnuðir þurfa að vera félagar í einu af aðildarfélögum Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs eða fagmenn á sínu sviði til að hljóta verðlaunin. Ný verk eru verk sem lokið hefur verið við á síðustu tveim til þremur árum fyrir afhendingu verðlaunanna. Tilnefningarnar til Hönnunarverðlauna Íslands verða allar tilkynntar hér á Vísi. Miðstöð hönnunar og arkitektúrs Milljón króna peningaverðlaun Við val á verðlaunahafa er haft í huga að verið er að leita að framúrskarandi verki, eða safni verka, sem standa á sem fulltrúi þess besta sem gert er á sviði hönnunar og arkitektúrs. Verkið/verkin þurfa að vera einstök, fela í sér frjóa hugsun, snjalla lausn, vandaða útfærslu og fagmennsku í vinnubrögðum. Hönnunarverðlaun Íslands eru peningaverðlaun að upphæð 1.000.000 krónur, sem hafa verið veitt af ráðherra ferðamála, iðnaðar- og nýsköpunar. Besta fjárfesting í hönnun er viðurkenning sem veitt var í fyrsta sinn 2015. Fyrirtæki sem eiga þess kost að hljóta viðurkenninguna Besta fjárfesting í hönnun hafa hönnun og arkitektúr að leiðarljósi frá upphafi verka til að auka verðmætasköpun og samkeppnishæfi. Öll fyrirtæki sem starfa á Íslandi koma til greina. Miðstöð hönnunar og arkitektúrs stendur að verðlaununum, í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands, Listaháskóla Íslands, Landsvirkjun, Íslandsstofu og Samtök iðnaðarins. Nánar á síðu Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs.
Tíska og hönnun HönnunarMars Mest lesið Kvikmyndastjarna slær í gegn á Landsmóti hestamanna Lífið Ólafía Hrönn reyndist vera á bak við „stóra pokamálið“ Lífið „Þetta er enginn helvítis félagskvíði, það bara þolir mig enginn“ Áskorun Sauð upp úr í stjörnufansi á golfmóti Coolbet Lífið Setti sér markmið og hóf veitingarekstur átján ára Lífið Helvítis kokkurinn: Gómsætar grillaðar lambakótelettur Lífið Fannst eins og hann væri eini fulli í brekkunni fyrir hádegi Lífið Júlía Margrét gengin út Lífið Götutíska fyrir íslenskar aðstæður Lífið Herbert og Patrik leika við hvern sinn fingur í nýju myndbandi Tónlist Fleiri fréttir Vann til margra verðlauna fyrir stól sem slær í gegn „Með 40 prósent af óþarfa með mér og virðist ekki læra af því“ „Ekki fylgja hverju einasta tískutrendi“ Enn að ná sér niður eftir að hafa hitt Miuccia Prada Leyfir bumbunni að njóta sín á meðgöngunni Sjóðheit trend beint af tískupallinum í París Skvísuviðburður þar sem hátískuflíkum rigndi yfir gesti Þotulið listagyðja fögnuðu að sænskum stíl „Ef ég væri ekki prestur væri gaman að vera poppstjarna“ „Mér þykir alltaf vænt um hlutina mína“ Líður bókstaflega óstöðvandi í góðu fitti Ofurskvísur landsins fögnuðu „Heiðarlegri“ fatalínu Heiðar Klæðir sig oft óbeint í stíl við dóttur sína „Tilfinningaþrungið að fá að fylgja myndinni í flík sem þessari“ Sjá meira