Meistararnir þokast nær toppnum

Anton Ingi Leifsson skrifar
Ronaldo komst ekki á blað í dag. Það kom þó ekki að sök.
Ronaldo komst ekki á blað í dag. Það kom þó ekki að sök. Getty/Jonathan Moscrop

Juventus vann 2-0 sigur á Sampdoria á útivelli í ítölsku úrvalsdeildinni í dag. Sigurinn mikilvægur upp á framhaldið hjá ítölsku meisturunum.

Fyrsta mark leiksins kom á tuttugustu mínútu. Alvaro Morata kom þá boltanum á Federico Chiesa sem heldur áfram að skora mikilvæg mörk fyrir Juventus.

Aaron Ramsey tvöfaldaði svo forystuna í uppbótartíma og lokatölur 2-0.

Juventus er í þriðja sætinu með 39 stig, sjö stigum frá toppliði AC Milan, en Juventus á leik til góða á toppliðið.

Sampdoria er í tíunda sætinu með 26 stig.


Ítalski boltinn, Serie A, er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Serie A er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira