Lífið

Leikarinn Hal Hol­brook fallinn frá

Atli Ísleifsson skrifar
Hal Holbrook fór á ferli sínum meðal annars með hlutverk uppljóstrarans Deep Throat í All the President's Men.
Hal Holbrook fór á ferli sínum meðal annars með hlutverk uppljóstrarans Deep Throat í All the President's Men. Getty

Bandaríski leikarinn Hal Holbrook er látinn, 95 ára að aldri. Hann lést á heimili sínu í Beverly Hills fyrir um viku síðan, en hann var þekktastur fyrir að hafa farið með hlutverk rithöfundarins Mark Twain í sýningunni Mark Twain Tonight!

New York Times segir frá því að Holbrook hafi á ferli sínum unnið til fjölda Emmy-verðlauna, auk þess að hafa verið tilnefndur til Óskarsverðlauna.

Holbrook vakti einnig athygli fyrir hlutverk sitt sem Ron Franz í Into the Wild, mynd Seans Penn frá árinu 2007. Hann var tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir hlutverkið, þá 82 ára gamall, og var á þeim tíma elstur til að hljóta tilnefningu í flokknum.

Hann fór með hlutverk Deep Throat í myndinni All the President‘s Men frá árinu 1976 sem fjallaði um Watergate-hneykslið.

Holbrook birtist jafnframt í kvikmyndum á borð við Julia, The Fog, Creepshow, Wall Street, The Firm, Hercules, Men of Honor og Lincoln, og sjóvarpsþáttum eins og NCIS, The West Wing, The Sopranos, ER, Bones, Grey's Anatomy, og Hawaii Five-0.

Holbrook stundaði á sínum yngri árum nám í Denison University og var í þjónustu bandaríska hersins á tímum seinni heimsstyrjaldarinnar þar sem hann var staðsettur á herstöð á Nýfundnalandi.

Hann var þrígiftur og gekk að eiga Dixie Carter árið 1984. Hún lést árið 2010. Holbrook lætur eftir sig þrjú börn, tvær stjúpdætur og fjögur barnabörn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.