Hinn sí­ungi Zlatan hefur nú skorað yfir fimm hundruð mörk á ferlinum er Milan fór á toppinn

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Þessir tveir skoruðu öll fjögur mörk Milan í dag.
Þessir tveir skoruðu öll fjögur mörk Milan í dag. Giuseppe Cottini/Getty Images

Hinn magnaði Zlatan Ibrahimović skoraði tvívegis er AC Milan vann 4-0 sigur á Crotone í ítölsku úrvalsdeildinni í dag. Var Zlatan að skora sitt 500. og 501. mark á ferlinum.

Það tók heimamenn í AC Milan hálftíma að brjóta gestina á bak aftur. Þá skoraði Zlatan eftir skemmtilegan þríhyrning við Rafael Leão. Frábær afgreiðsla. Var þetta 500. mark Svíans á annars ótrúlegum ferli.

Hinn 39 ára gamli Zlatan ákvað að láta ekki þar við sitja og tvöfaldaði hann forystu Milan í síðari hálfleik á 64. mínútu þegar hann fékk sendingu fyrir markið og renndi boltanum í autt markið. 

Milan gerði svo út um leikinn skömmu síðar en Ante Rebić skoraði tvívegis á aðeins einni mínútu og níu sekúndum, bæði eftir sendinga frá Hakan Çalhanoğlu.

Staðan orðin 4-0 og reyndust það lokatölur dagsins. AC Milan stekkur þar með upp fyrir nágranna sína í Inter og er á toppi deildarinnar með 49 stig að loknum 21 leik. Crotone situr sem fastast á botni deildarinnar með 12 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira