Innlent

Svona var 163. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir fer yfir stöðu mála á fundinum í dag.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir fer yfir stöðu mála á fundinum í dag. Vísir/Vilhelm

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til upplýsingafundar klukkan 11 í dag. Þar munu Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir fara yfir stöðu mála varðandi framgang COVID-19 faraldursins hér á landi.

Fundurinn verður sem fyrr í beinni útsendingu á Vísi, í sjónvarpinu á Stöð 2 Vísi og svo í textalýsingu hér að neðan.

Blaðamenn fá að mæta á fundinn í eigin persónu í fyrsta skipti síðan 12. október en síðan þá hafa þeir tekið þátt í fundinum í gegnum fjarfundarbúnað. Gæta þarf þó vel að einstaklingsbundnum sóttvörnum, vera með grímur og gæta að fjarlægðarmörkum.

Uppfært: Fundinum er lokið og má sjá upptöku frá honum að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×