Innlent

Enginn greindist innan­lands sjötta daginn í röð

Atli Ísleifsson skrifar
9.658 hafa nú lokið bólusetningu og er hún hafin hjá 5.537 til viðbótar.
9.658 hafa nú lokið bólusetningu og er hún hafin hjá 5.537 til viðbótar. Vísir/Vilhelm

Sjötta daginn í röð greindist enginn með korónuveiruna innanlands í gær. Tveir greindust með veiruna á landamærum, þar sem annar reyndist vera með mótefni og er niðurstöðu mótefnamælingar beðið í tilvikum hins.

Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á síðunni covid.is.

26 manns eru nú í einangrun, samanborið við 29 í gær. 27 eru nú í sóttkví, en þeir voru 24 í gær. 878 eru í skimunarsóttkví.

Nýgengi innanlandssmita, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 1,9 líkt og í gær. Nýgengi landamærasmita er nú 5,2, en var 5,5 í gær.

6.044 manns hafa nú greinst með kórónuveiruna hér á landi frá því faraldurinn hófst í lok febrúar. Þá hafa 29 dauðsföll verið rakin til Covid-19 á Íslandi frá upphafi faraldursins.

9.658 hafa nú lokið bólusetningu og er hún hafin hjá 5.537 til viðbótar.

Alls voru tekin 363 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær og 140 sýni á landamærunum eða í seinni landamæraskimun.

Fréttin hefur verið uppfærð. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×