Á niðurleiðinni hafi eitthvað komið upp á sem hafi orðið til þess að þeir skiluðu sér ekki niður fjallið. Fjallgöngumennirnir voru í dag úrskurðaðir látnir af yfirvöldum í Pakistan.
Lína Móey sendi frá sér tilkynningu á ensku á Facebook í dag þar sem hún segist þakklát öllum þeim sem hafa tekið þátt í leitar- og björgunaraðgerðum vegna mannanna þriggja undanfarna tíu daga.
„Þeir voru allir þrír öflugir fjallgöngukappar sem vildu, gátu og með hugrekki til að skrifa sig á spjöld sögunnar með því að standa á toppi K2 að vetrarlagi,“ segir fjölskyldan í færslunni.
„Miðað við tímasetninguna á því þegar síðast náðist samband við síma Johns Snorra erum við sannfærð um að mennirnir þrír hafi allir komist á topp K2 og því hafi eitthvað komið upp á þegar þeir voru á leiðinni niður.“
Hún segir fjölskyldu Johns Snorra vilja senda þakklætiskveðju til yfirvalda í Pakistan, Chile og Íslands fyrir þeirra framlag í leit að þeirra elskuðu.
„Enginn vafi leikur á því í okkar huga að umfang leitarinnar og tæknin sem var notuð er fordæmalaus og mun vonandi auka öryggi fjallgöngumanna um heim allan til framtíðar.“
Hjörtun slá í takt
Fjölskyldan segir pakistanska herinn hafa sýnt sérstaklega mikinn stuðning á þessum erfiðu tímum með því að sjá af tækjum og mannafla.
„Við þökkum hinum hugrökku pakistönsku hermönnum fyrir kærleik þeirra til Ali, Johns og Juan Pablo.“
Þá bætir fjölskyldan við að vinátta Ali, Sajid sonar hans og Johns sé eitthvað sem fjölskyldan muni varðveita. Í því samhengi sé fjölskyldan full þakklætis að Sajid hafi komist lífs af.
„Íslensk hjörtu okkar slá í takt við hjörtu Pakistana og Chile-manna. Við þökkum öllum þeim sem hafa séð af tíma til að leita og hugsa til okkar með stuðningi í formi skilaboða og hugsana á þessum erfiðu tímum. Ali, John og Juan Pablo munu lifa í hjörtum okkar að eilífu.“