Menning

Anna Rún hand­hafi Guð­mundu­verð­launanna 2021

Eiður Þór Árnason skrifar
Anna Rún Tryggvadóttir er sögð vera fulltrúi kraftmikillar kynslóðar íslenskra myndlistamanna sem kveða sér hljóðs jafnt á Íslandi sem alþjóðlega.
Anna Rún Tryggvadóttir er sögð vera fulltrúi kraftmikillar kynslóðar íslenskra myndlistamanna sem kveða sér hljóðs jafnt á Íslandi sem alþjóðlega. Listasafn Reykjavíkur

Myndlistarkonan Anna Rún Tryggvadóttir hlaut í dag Guðmunduverðlaunin 2021 og einnar milljóna króna styrk úr Listasjóði Guðmundu. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri afhenti Önnu viðurkenninguna í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsi í dag en hún er veitt listakonum sem eru taldar skara fram úr á sínu sviði. 

Fram kemur á vef Listasafns Reykjavíkur að verk Önnu hafi vakið athygli jafnt hér á landi sem erlendis en hún hefur undanfarin ár skipt tíma sínum á milli Reykjavíkur og Berlínar. 

„Í verkum sínum teflir Anna Rún saman tækni og náttúru þar sem lögmál tækni og náttúru taka þátt í sköpunarferlinu. Hún hefur unnið bæði skúlptúra og innsetningar þar sem ekkert er endanlegt og verkin mótast á meðan á sýningum stendur. Vélbúnaður skapar heim fegurðar í endurteknu ferli sem Annar Rún hefur sett af stað. Þannig verður listaverkið til fyrir augum áhorfenda. Náttúran og hið manngerða mætast í sjálfvirkni sem skapar fegurð fulla af tilviljunum þar sem ferlið sjálft er jafn mikilvægt og endanleg úrkoma – sem raunar getur verið erfitt að sjá fyrir hver verði.

Þó verk Önnu Rúnar séu þaulhugsuð og mörg flókin í framkvæmd er tilviljunin og fegurðin sem felst í flæði lita og forma alltaf nálæg. Anna Rún er verðugur handhafi viðurkenningar Guðmundusjóðs Errós og fulltrúi kraftmikillar kynslóðar íslenskra myndlistamanna sem kveða sér hljóðs jafnt hér heima sem alþjóðlega,“ segir á vef Listasafnsins.  

Stofnaði sjóðinn til minningar um móðursystur sína

Myndlistarmaðurinn Erró stofnaði Guðmunduverðlaunin árið 1997 til minningar um móðursystur sína, Guðmundu S. Kristinsdóttur frá Miðengi. Með því vildi hann leggja sitt af mörkum til framþróunar íslenskrar myndlistar og er styrknum ætlað að vera hvatning til frekari dáða á sviði myndlistar. Peningaupphæðin, ein milljón króna, er nú ein hæsta viðurkenning sem veitt er á sviði myndlistar á Íslandi að sögn Listasafns Reykjavíkur en þetta er í 21. sinn sem styrkurinn er veittur.

Meðal nýlegra sýningarverkefna Önnu má nefna einkasýningu hennar í Kunstlerhaus Bethanien í Berlín á síðasta ári og einkasýningu í D-sal í Hafnarhúsi Listasafns Reykjavíkur árið 2017. Þá sýndi Anna Rún verkið Garð sem nú er hluti af safneign Listasafns Reykjavíkur. Einnig tekur hún þátt í stórsýningunni Iðavelli sem sett verður upp í Hafnarhúsi í júní á þessu ári og verður þar ein fimmtán listamanna sem munu yfirtaka bygginguna.

Anna er fædd árið 1980 og stundaði myndlistarnám í Listaháskóla Íslands og framhaldsnám í Concordia-háskólanum í Montréal í Kanada. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.