Innlent

Einn greindist með kórónu­veiruna innan­lands í gær

Atli Ísleifsson skrifar
Alls hafa rúmlega sex þúsund greinst með kórónuveiruna hér á landi frá upphafi faraldursins.
Alls hafa rúmlega sex þúsund greinst með kórónuveiruna hér á landi frá upphafi faraldursins. Landspítali/Þorkell Þorkelsson

Einn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær. Sá sem greindist var í sóttkví við greiningu. Smitið er það fyrsta sem greinist hér á landi í eina viku.

Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á síðunni covid.is. Tveir greindust með veiruna á landamærum og reyndust þeir báðir vera með mótefni. 

Sá sem greindist innanlands greindist í svokallaðri sóttkvíar- og handahófsskimun.

27 manns eru nú í einangrun, samanborið við 26 í gær. 26 eru nú í sóttkví, en þeir voru 27 í gær. 891 eru í skimunarsóttkví.

Nýgengi innanlandssmita, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 2,2, en var 1,9 í gær. Nýgengi landamærasmita er nú 4,6, en var 5,2 í gær.

6.045 manns hafa nú greinst með kórónuveiruna hér á landi frá því faraldurinn hófst í lok febrúar. Þá hafa 29 dauðsföll verið rakin til Covid-19 á Íslandi frá upphafi faraldursins.

Alls voru tekin 688 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær og 595 sýni á landamærunum eða í seinni landamæraskimun.

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×