Innlent

Enginn greindist innan­lands í gær

Atli Ísleifsson skrifar
Alls hafa um 10.500 manns verið fullbólusettir gegn Covid-19 hér á landi frá upphafi faraldursins.
Alls hafa um 10.500 manns verið fullbólusettir gegn Covid-19 hér á landi frá upphafi faraldursins. Vísir/Vilhelm

Enginn greindist með kórónuveiruna innan­lands í gær.  Einn greindist með veiruna á landamærum og niðurstöðu mótefnamælingar beðið.

Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á síðunni covid.is. 25 manns eru nú í einangrun og 26 í sóttkví. 967 eru í skimunarsóttkví.

Nýgengi innanlandssmita, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 1,6, en var 2,2 á föstudaginn. Nýgengi landamærasmita er nú 4,9, en var 4,6 á föstudaginn.

6.049 manns hafa nú greinst með kórónuveiruna hér á landi frá því faraldurinn hófst í lok febrúar. Þá hafa 29 dauðsföll verið rakin til Covid-19 á Íslandi frá upphafi faraldursins.

Alls voru tekin 273 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær og 398 sýni á landamærunum eða í seinni landamæraskimun.

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×