Lífið

Rit­stjórar Stundarinnar nýtt par

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir og Jón Trausti Reynisson, ritstjórar Stundarinnar, eru byrjuð saman.
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir og Jón Trausti Reynisson, ritstjórar Stundarinnar, eru byrjuð saman. Heiða Helgudóttir

Þau Jón Trausti Reynisson og Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, ritstjórar Stundarinnar, eru orðin par.

„Ef það er eitthvað sem heimsfaraldrar og náttúruhamfarir kenna manni er það að hika ekki við að gera það rétta í lífinu,“ skrifar Jón Trausti í Facebook-færslu þar sem hann greinir frá tíðindunum.

„Við höfum unnið saman, ferðast saman, hangið saman, stofnað fyrirtæki saman og lært saman og nú höfum við ákveðið að vera saman og búa saman,“ skrifar Jón Trausti og birtir mynd af parinu á góðviðrisdegi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.