Innlent

Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Frettir-hadegis_1080x720

Í hádegisfréttum fjöllum við um jarðskjálftana á Reykjanesskaga og ræðum við Kristínu Jónsdóttur náttúruvársérfræðing hjá Veðurstofunni en snarpur skjálfti reið yfir rétt eftir klukkan ellefu í morgun.

Þá tökum við stöðuna á Landsneti og veltum fyrir okkur hvað myndi gerast ef Suðurnesjalína færi í sundur vegna eldhræringa á svæðinu. Að auki fjöllum við áfram um Fossvogsskóla og myglu sem þar fannst á dögunum og segjum frá bólusetningum í Laugardalshöll sem eru í fullum gangi. Þetta og meira til í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu tólf. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×