Innlent

Ferjan Baldur vélar­vana nærri Stykkis­hólmi

Eiður Þór Árnason skrifar
Myndin var tekin um borð í Þór þegar skipið lagði af stað frá Helguvík.
Myndin var tekin um borð í Þór þegar skipið lagði af stað frá Helguvík. Landhelgisgæslan

Vélarbilun hefur komið upp í Breiðafjarðarferjunni Baldri en skipið er statt um tíu sjómílur frá Stykkishólmi, mitt á milli Flateyjar og Stykkishólms. Um borð eru tuttugu farþegar auk átta manna áhafnar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eimskip sem reka ferjuna undir merkjum Sæferða. Þar segir að rannsóknarskipið Árni Friðriksson sé nú á leið til Baldurs auk Þórs, varðskips Landhelgisgæslunnar. Þyrlusveit Gæslunnar var einnig kölluð út og verður í viðbragðsstöðu ef á þarf að halda.

Sæferðir vinna nú að aðgerðum með Landhelgisgæslunni og er ráð fyrir að skipið verði dregið í Stykkishólm. Fram kemur í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni að auk varðskipsins og rannsóknarskipsins hafi sjóbjörgunarsveitir á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar verið kallaðar út á þriðja tímanum vegna vélarbilunarinnar.

Uppfært klukkan 16:50: Unnið er að því að koma taugum á milli Baldurs og rannsóknarskipsins Árna Friðrikssonar að sögn Gunnlaugs Grettissonar, framkvæmdastjóra Sæferða.

Varðskipið Þór lagði af stað frá Helguvík á þriðja tímanum. Landhelgisgæslan

Varðskipið Þór statt í Helguvík

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar fékk tilkynningu um bilunina klukkan 14:27 og er gert ráð fyrir því að rannsóknarskipið Árni Friðriksson verði komið að Baldri á fimmta tímanum. Varðskipið Þór er jafnframt á leið á staðinn en skipið var statt í Helguvík þegar útkallið barst. 

Baldur varpaði akkerum fljótlega eftir að bilunarinnar varð vart til að hindra rek og halda akkerin vel, af því er fram kemur í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni. 

„Vindátt er úr norðaustri og ef rek yrði á skipinu ræki það frá landi og grynningum. Ástandið um borð er tryggt en til að gæta fyllsta öryggis var þyrlusveit Landhelgisgæslunnar einnig kölluð út og verður í viðbragðsstöðu ef á þarf að halda.“

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×