Innlent

Einn greindist utan sóttkvíar

Atli Ísleifsson skrifar
14.104 eru nú fullbólusettir hér á landi og er bólusetning hafin hjá 23.075 til viðbótar.
14.104 eru nú fullbólusettir hér á landi og er bólusetning hafin hjá 23.075 til viðbótar. Vísir/Vilhelm

Einn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær. Viðkomandi var utan sóttkvíar. Um er að ræða fyrsta kórónuveirusmitið sem greinist hér á landi utan sóttkvíar síðan 8. mars.

Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á síðunni covid.is. 22 eru nú í einangrun, en í gær voru þeir 31. 22 eru nú í sóttkví, en voru tuttugu í gær. 989 eru nú í skimunarsóttkví.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir sagði á upplýsingafundi almannavarna að rakning sé í fullum gangi og sömuleiðis raðgreining varðandi þennan einstakling sem greindist smitaður utan sóttkvíar í gær. „Tilfellið sem greindist í gær sýnir að veiran er ekki horfin úr íslensku samfélagi,“ segir Þórólfur.

Einn greindist með kórónuveiruna á landamærunum, í tilviki viðkomandi er mótefnamælingar beðið.

Nýgengi innanlandssmita, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 2,5, en var 2,2 í gær. Nýgengi landamærasmita er nú 6,5, en var 6,3 í gær.

14.104 eru nú fullbólusettir hér á landi og er bólusetning hafin hjá 23.075 til viðbótar.

6.091 manns hafa nú greinst með kórónuveiruna hér á landi frá því faraldurinn hófst í lok febrúar. Þá hafa 29 dauðsföll verið rakin til Covid-19 á Íslandi frá upphafi faraldursins.

Alls voru tekin 495 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær. Þá voru 346 sýni tekin á landamærunum eða í seinni landamæraskimun.

Fréttin hefur verið uppfærð




Fleiri fréttir

Sjá meira


×