Innlent

Tveir fluttir á slysadeild eftir umferðarslys

Sylvía Hall skrifar
Samkvæmt dagbók lögreglu var rólegt á höfuðborgarsvæðinu í dag, þó nokkrar tilkynningar hafi borist. 
Samkvæmt dagbók lögreglu var rólegt á höfuðborgarsvæðinu í dag, þó nokkrar tilkynningar hafi borist.  Vísir/vilhelm

Rétt fyrir klukkan sex í kvöld barst lögreglu tilkynning um umferðarslys. Báðar bifreiðar voru óökufærar eftir slysið og ökumenn þeirra fluttir á slysadeild, en áverkar virtust minniháttar við fyrstu skoðun að því er fram kemur í dagbók lögreglu í kvöld.

Annað umferðarslys hafði orðið á fjórða tímanum í dag. Tvær bifreiðar lentu þá í árekstri en farþegar slösuðust lítið.

Á níunda tímanum í kvöld var svo tilkynnt um líkamsárás í austurbæ Reykjavíkur. Gerandi var handtekinn á vettvangi og mun hann gista fangageymslu lögreglu í nótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×