Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands er mjó hrauntunga sem rennur í suðsuðvestur og önnur tunga í vestur. Syðri endi tungunnar er um 2,6 km frá Suðurstrandarvegi, en sprungan sjálf er um 500 til 700 metrar.
Reykjanesbraut og Grindavíkurvegi var lokað um tíma á ellefta tímanum í kvöld. Vegirnir voru opnaðir á ný eftir að ljóst varð í hvaða átt hraunið rann. Sérfræðingar segja staðsetningu gossins afar góða og hefur gosinu verið lýst sem ræfilslegu.
Í aukafréttatíma Stöðvar 2 sagði Kristín Jónsdóttir, hópstjóri náttúruvárvöktunar hjá Veðurstofu Íslands, að gosið hefði komið henni á óvart. Hún var þá nýkomin úr flugi með Landhelgisgæslunni yfir gosstöðvarnar.
Fólk nærri mögulegu gossvæði sagðist á tíunda tímanum hafa séð ljósbjarma frá svæðinu og höfðu fréttastofu borist samskonar ábendingar. Fyrsta tilkynning barst Veðurstofu Íslands klukkan 21:20, en það var svo klukkan 21:55 sem staðfest var að eldgos væri hafið.
Samkvæmt nýjustu upplýsingum frá Veðurstofunni hófst gosið klukkan 20:45.
