Viðskipti innlent

Upp­sagnir og lokanir hjá Kaffi­tári

Eiður Þór Árnason skrifar
Heimsfaraldurinn hefur reynst mörgum fyrirtækjum í veitingarekstri mjög erfiður.
Heimsfaraldurinn hefur reynst mörgum fyrirtækjum í veitingarekstri mjög erfiður. Vísir/Vilhelm

Kaffitár hefur lokað kaffihúsi sínu í Bankastræti tímabundið og endanlega hætt rekstri í Þjóðminjasafninu. Þetta staðfestir Marta Rut Pálsdóttir, rekstrarstjóri kaffihúsa hjá Kaffitári, í samtali við Vísi.

Hún segir að Kaffitár hafi þurft að ráðast í uppsagnir vegna lokunarinnar á Þjóðminjasafninu sem tók gildi 1. febrúar en vildi ekki gefa upp fjölda þeirra sem misstu vinnuna. Sú tala væri þó undir tíu manns. Fyrst var greint frá breytingunum á vef Eiríks Jónssonar.

Að sögn Mörtu hefur heimsfaraldur kórónuveiru og fækkun ferðamanna haft áhrif á reksturinn. Sérstaklega hafi borið á því í Bankastræti þar sem erlendir ferðamenn voru hátt í 80 prósent viðskiptavina. 

Er bjartsýn á framhaldið

Hún bætir við að stjórnendur Kaffitárs séu hvergi bangnir og vonist til að geta opnað kaffihúsið á Bankastræti hið fyrsta. Þá standi ekki til að draga saman seglin heldur séu stjórnendur frekar að skoða nýjar staðsetningar.

„Öll hin kaffihúsin eru í góðu gengi og eru ekkert að fara að loka. Við stefnum áfram veginn en þetta var því miður mjög erfið ákvörðun. Vonandi sjáum við betri tíma í þjóðfélaginu og opnum fyrr en seinna. Ég hef fulla trú á okkur.“

Kaffitár ehf. tapaði 71 milljón króna árið 2019 samkvæmt ársreikningi og 115 milljónum króna árið 2018 en ársreikningur síðasta árs liggur ekki fyrir. Nýja Kaffibrennslan ehf., systurfyrirtæki heildsölunnar Ó. Johnson & Kaaber ehf. gekk frá kaupum á rekstri Kaffitárs árið 2019.

Fréttin hefur verið uppfærð.


Tengdar fréttir

Kaffitár selt

Samkomulag hefur náðst milli hluthafa Nýju kaffibrennslunnar ehf. og Kaffitárs ehf. um kaup þess fyrrnefnda á Kaffitári.

Kaffitár tapaði 115 milljónum

Kaffitár tapaði 115 milljónum króna á síðasta ári samkvæmt nýlegum ársreikningi kaffihúsakeðjunnar, en til samanburðar varð 40 milljóna króna tap á rekstri keðjunnar árið 2017.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×