Viðskipti innlent

Vextir að öllum líkindum lágir út árið

Heimir Már Pétursson skrifar
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Rannveig Sigurðardóttir aðstoðarseðlabankastjóri fóru yfir stöðu paningamála og vaxta á upplýsingafundi í morgun.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Rannveig Sigurðardóttir aðstoðarseðlabankastjóri fóru yfir stöðu paningamála og vaxta á upplýsingafundi í morgun. Stöð 2/Egill

Seðlabankastjóri reiknar ekki með miklum vaxtabreytingum út þetta ár en peningastefnunefnd ákvað í morgun að halda meðalvöxtum sínum óbreyttum í 0,75 prósentum. Verðbólga lækkar hægar en fyrri spár Seðlabankans gerðu ráð fyrir.

Eftirspurnin í þjóðfélaginu hefur reynst meiri en spár Seðlabankans gerðu ráð fyrir.Á upplýsingafundi í morgun kom fram að samdráttur landsframleiðslu hafi verið 6,6% í fyrra en ekki 7,7 prósent eins og spá Seðlabankans í febrúar gerði ráð fyrir. Efnahagsumsvif hafi reynst kröftugri en spáð hafði verið á síðasta fjórðungi ársins og samdrátturinn á fyrstu þremur fjórðungum ársins verið nokkru minni en fyrri tölur bentu til.

Peningastefnunefnd segir að óvissan sé hins vegar enn mikil. Þróun efnahagsmála hér og erlendis muni að töluverðu leyti ráðast af framvindu farsóttarinnar og hversu vel bólusetning gegn henni gangi.

Verðbólga hefur hjaðnað töluvert hægar en Seðlabankinn reiknaði með og mældist 4,1% í febrúar.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri reiknkar með að vextir verði áfram lágir út þetta ár.Stöð 2/Egill

Eruð þið að sjá fram á að það séu miklar líkur á að hún lækki á næstu þremur mánuðum?

„Á næstu sex mánuðum myndi ég halda af því að nú hefur gengið verið að styrkjast undanfarið. Það eru ýmsir aðrir þættir að vinna með henni þannig að ég held að hún sé að fara að ganga niður,“ segir Ásgeir Jónsson Seðlabankastjóri.

Seðlabankinn hafði í fyrri spám reiknað með að verðbólga fær ört lækkandi á fyrstu þremur mánuðum þessa árs en hún er enn 1,6 prósentustigum yfir 2,5 prósenta markmiði bankans.

Heimilin hafa verið dugleg í lántökum fyrir húsnæði undanfarin misseri vegna sögulega hagstæðra vaxta. Ásgeir reiknar með að vextir verði áfram lágir.

„Við munum ekki hækka vexti nema við nauðsynlega þurfum. Við skulum orða það þannig. Að einhverju leyti höfum við líka önnur stýritæki sem við getum beitt. Okkar spár segja að við þurfum í rauninni ekki að grípa til vaxtahækkana á þessu ári ef allt gengur eftir,“ segir Ásgeir Jónsson.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×