Framboðsfresturinn er nú runninn út og hefur listi yfir framboð verið birtur á heimasíðu Vinstri grænna. Þrjú stefna á oddvitasæti, en rafrænt forval fer fram dagana 15. til 17. apríl næstkomandi.
Þau níu sem bjóða sig fram á lista VG í forvalinu eru:
- Bjarki Bjarnason, rithöfundur og forseti bæjarstjórnar í Mosfellsbæ. 4. – 5. sæti.
- Einar Bergmundur Þorgerðar- og Bóasarson, hugbúnaðarsérfræðingur. 3. – 5. sæti.
- Júlíus Andri Þórðarson, stuðningsfulltrúi og háskólanemi. 4. sæti.
- Kolbrún Halldórsdóttir, leikstjóri og fyrrverandi alþingismaður og ráðherra. 2. sæti.
- Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra og umhverfisfræðingur. 1. sæti.
- Ólafur Þór Gunnarsson, læknir og alþingismaður. 1. sæti.
- Una Hildardóttir, upplýsingafulltrúi og varaþingmaður. 1. – 2. sæti.
- Valgerður Bláklukka Fjölnisdóttir, þjóðfræðinemi. 3. sæti.
- Þóra Elfa Björnsson, setjari og framhaldsskólakennari. 3. – 5. sæti.
Þrír kynningar og málefnafundir með frambjóðendum, fjarfundir á zoom.
Fundirnir eru opnir öllum og fundarstjóri verður Kristján Kristjánsson, fjölmiðlamaður.
Hlekk á fundina verður hægt að nálgast á vg.is og samfélagsmiðlum.
- Fimmtudagur 8. apríl kl 20:00
- Mánudagur 12. apríl kl 20:00
- Miðvikudagur 14. apríl kl 20:00