Fótbolti

Twitter eftir tapið í Þýska­landi: „Peppið að­eins að dofna“

Anton Ingi Leifsson skrifar
Arnór Ingvi trúir ekki sínum eigin augum í kvöld.
Arnór Ingvi trúir ekki sínum eigin augum í kvöld. AP Photo/Michael Sohn

Íslenska landsliðið tapaði 3-0 fyrir því þýska er liðin mættust í undankeppni HM í Katar 2022 í Duisburg í kvöld.

Ísland fékk martraðarbyrjun í Duisburg í kvöld en liðið var lent undir á þriðju mínútu og fjórum mínútum síðar stóðu leikar 2-0.

İlkay Gündoğan, einn besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar á þessari leiktíð, bætti svo við þriðja markinu í síðari hálfleik og þar við sat.

Twitter er líflegur vettvangur yfir leikjum íslenska landsliðsins og á því var engin undantekning í kvöld.

Hér að neðan má sjá brot af umræðunni.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×