Lífið

Svona komst Natan Dagur áfram í The Voice Norway

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Natan Dagur virðist ætla sér stóra hluti í keppninni.
Natan Dagur virðist ætla sér stóra hluti í keppninni. The Voice Norway

Og Natan Dagur Benediktsson er kominn áfram í þriðju umferð norsku sjónvarpskeppninnar The Voice.

Akureyringurinn, sem er 22 ára, fór utan með föður sínum í upphafi árs gagngert til að taka þátt í áheyrnarprufum. Svo vel hefur gengið að þar er hann enn. 32 keppendur bítast nú um sigur í keppninni.

Natan Dagur mætti söngkonunni Alexu í einvígi um hvort þeirra kæmist áfram í 32-manna úrslitin. Þau sungu hvort sinn hlutann í laginu Take me to Church með Hozier.

Fram undan eru fleiri einvígi næstu fjóra föstudaga þar sem þátttakendum verður fækkað um helming. Natan Dagur mun keppa einn þessa fjögurra föstudaga. Komist hann í sextán liða úrslitin keppir hann í beinni útsendingu í The Voice Norway en keppnin er sýnd á TV2 í Noregi.

Flutninginn og umsögn dómara má sjá að neðan.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.