Innlent

Fjórir greindust innan­lands og tveir utan sóttkvíar

Atli Ísleifsson skrifar
20.734 eru nú fullbólusettir hér á landi og er bólusetning hafin hjá 24.688 til viðbótar.
20.734 eru nú fullbólusettir hér á landi og er bólusetning hafin hjá 24.688 til viðbótar. Vísir/Vilhelm

Fjórir greindust með kórónuveiruna innan­lands í gær. Tveir þeirra sem greindust voru í sóttkví, en tveir voru utan sóttkvíar.

Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á Covid.is. 108 eru nú í einangrun, samanborið við 95 á föstudaginn. 1.337 eru nú í sóttkví, en voru 1.279 á föstudaginn. 1.375 eru nú í skimunarsóttkví. Þá er einn á sjúkrahúsi vegna Covid-19. Síðan covid.is er ekki uppfærð um helgar og miðast samanburðartölurnar því við þær sem birtar voru á föstudaginn.

Tveir greindust á landamærunum í gær, báðir í seinni landamæraskimun.

Nýgengi á smiti innanlands, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 14,5, en var 10,9 á föstudag. Nýgengi á smiti á landamærum er nú 12,0, en var 13,4 á föstudag.

20.734 eru nú fullbólusettir hér á landi og er bólusetning hafin hjá 24.688 til viðbótar.

6.183 manns hafa nú greinst með kórónuveiruna hér á landi frá því faraldurinn hófst í lok febrúar. Þá hafa 29 dauðsföll verið rakin til Covid-19 á Íslandi frá upphafi faraldursins.

Alls voru tekin 732 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær. Þá voru 679 sýni tekin á landamærunum eða í seinni landamæraskimun og 245 í svokallaðri sóttkvíar- og handahófsskimun.

Sex greindust innanlands á laugardag og þar af einn utan sóttkvíar. Á föstudags greindust fjórir og allir í sóttkví.

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×