Arnar segir það vel koma til greina að tala við Viðar og hreinsa loftið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. mars 2021 11:06 Viðar Örn Kjartansson skoraði í síðasta landsleik sem hann spilaði, á Parken í nóvember. Arnar Þór Viðarsson valdi aðra leikmenn á hans kostnað í yfirstandandi landsliðsverkefni. EPA Arnar Þór Viðarsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins, ræddi mál Viðars Arnars Kjartanssonar, á blaðamannafundi í dag.
Margir hafa gagnrýnt landsliðsþjálfarana að hafa ekki valið Viðar í landsliðið ekki síst eftir að Björn Bergmann Sigurðarson datt út úr hópnum. Þessi gagnrýni hefur ekki minnkað eftir tvo markalausa leiki í röð. Arnar kom seinna með þá skýringu að Vålerenga hafi ekki leyft Viðari að koma í þessa landsleiki en Viðar sjálfur hefur sagt að það sér ekkert til í því. Arnar var spurður út í fjölmiðlafárið í kringum Viðar og það að áhugi framherjans á að spila fyrir íslenska landsliðið hafi minnkað. „Í fyrsta lagi finnst mér mjög leiðinlegt að það sé svona umræða í gangi. Það var aldrei ætlunin hjá mér að búa til eitthvað leiðindamál. Mér þykir mjög miður ef að áhugi Viðars á landsliðinu hefur minnkað. Ég hef alltaf sagt að hann sé einn af þeim leikmönnum sem koma til greina,“ sagði Arnar Þór á blaðamannafundinum. Arnar vill gera upp þetta mál en ekki í fjölmiðlum eins og síðustu daga heldur með því að ræða við leikmanninn sjálfan. „Þegar það koma svona mál upp finnst mér best að tala um hlutina og vera mjög hreinskilinn og heiðarlegur. Það kemur vel til greina að hafa samband við Viðar þegar leiknum á morgun er lokið, til að tala saman og hreinsa loftið. Ég held að það væri hollt fyrir alla,“ sagði Arnar Þór á fundinum.
HM 2022 í Katar Mest lesið Myndasyrpa: Glódís og forsetinn í hláturskasti á hófinu í Hörpu Sport Telur sig hafa fengið hálfgert loforð frá ÍSÍ um fjármuni Fótbolti Stórleikurinn fer fram þrátt fyrir snjóinn Enski boltinn Glódís Perla íþróttamaður ársins með fullt hús stiga Sport „Þetta er það sem gerir þá öðruvísi en önnur lið“ Körfubolti Allt er fertugum LeBron fært Körfubolti „Við stýrðum leiknum ekki nægilega vel“ Enski boltinn Tognun í rassi en Elvar telur HM ekki í hættu Handbolti Þessi hlutu atkvæði sem Íþróttamaður ársins, lið ársins og þjálfari ársins Sport Pep neitar því að sínir menn séu komnir á beinu brautina Enski boltinn Fleiri fréttir Snjórinn gæti enn stöðvað stórleikinn á Anfield Telur sig hafa fengið hálfgert loforð frá ÍSÍ um fjármuni „Við stýrðum leiknum ekki nægilega vel“ Pep neitar því að sínir menn séu komnir á beinu brautina Willum Þór skoraði þegar Birmingham tyllti sér á toppinn Arsenal mistókst að setja aukna pressu á Liverpool Albert ekki með þegar Fiorentina steinlá gegn Napoli Skrípamark en Mikael og félagar fengu bara stig „Himinlifandi“ eftir að hafa landað fyrirliða Fylkis Slæmt gengi gestanna heldur áfram Meistararnir unnu annan leikinn í röð Isak með Newcastle áfram á miklu flugi Olmo og Victor í algjörri óvissu eftir að beiðni Barcelona var hafnað Valdi ekki Salah í lið ársins hingað til KA fær lykilmann úr Eyjum Miðvörður Chelsea illa meiddur enn á ný Englandsmeistarar Chelsea meðal liða sem vilja Cecilíu Rán Íslandsmeistarinn Andri Rafn áfram í röðum Breiðabliks Ólafur Guðmundsson til Noregs Líklegast að heimaleikur Víkinga fari fram í Kaupmannahöfn Ótrúlegur sigur lyfti Real á toppinn Brazell ráðinn til Vals Salah staðfestir að þetta sé hans síðasta tímabil með Liverpool Nýttu klásúlu í samningi Maguire Brann einnig rætt við Frey Salah henti Suarez úr toppsætinu Rashford ekki með til Liverpool og sagður lasinn Kahn gæti eignast fallið stórveldi Bjargaði æskufélaginu sínu Slot segir Man. Utd mun betra en taflan sýni Sjá meira