Viðskipti innlent

Sýn hf. selur félag í Færeyjum og fjarskiptainnviði fyrir milljarða

Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar
Sýn hf. á og rekur Vodafone, Stöð 2, fréttavefinn Vísi og útvarpsstöðvarnar Bylgjuna, FM 957 og X-ið 977.
Sýn hf. á og rekur Vodafone, Stöð 2, fréttavefinn Vísi og útvarpsstöðvarnar Bylgjuna, FM 957 og X-ið 977. Vísir/Vilhelm

Fjarskiptafélagið Sýn hf. hefur undirritað samning um sölu á hlut félagsins í færeyska hlutdeildarfélaginu P/F 20.11.19. fyrir sem nemur rúmum einum milljarði króna. Sýn átti 49,9% hlut í félaginu. Þá hefur Sýn einnig samið um sölu á óvirkum fjarskiptainnviðum félagsins fyrir rúma sex milljarða.

„Kaupverðið er 52,5 milljónir DKK og greiðist þegar öllum skilyrðum kaupsamnings hefur verið fullnægt. Það er mat stjórnenda félagsins að það verði á 2. ársfjórðungi. Eftir söluna mun áfram verða til staðar þjónustusamningur á milli félaganna. Viðskiptin hafa engin áhrif á EBITDA félagsins en styrkja lausafjárstöðu þess,“ segir í tilkynningu til Kauphallar í gær vegna sölunnar.

Þá hefur Sýn jafnframt samið um sölu og endurleigu á óvirkum farsímainnviðum félagsins þar sem væntanlegur söluhagnaður nemur yfir sex milljörðum króna. Samningarnir eru þó gerðir með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins auk annarra fyrirvara.

„Reikningsskil félagsins eru gerð í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaða (IFRS). Í samræmi við kröfur þeirra staðla verður farið með viðskiptin sem sölu og endurleigu á eignum. Af þeirri ástæðu mun meðferð þess söluhagnaðar sem verður af viðskiptunum ekki vera færður að fullu í gegnum rekstur á söludegi. Söluhagnaðurinn mun hlutfallast miðað við hlutfall gangvirðis og núvirðis væntrar leiguskuldbindingar. Núverandi mat miðar við að það hlutfall sé í kringum 80-85%. Miðað við þær forsendur mun 15-20% af söluhagnaðinum verða færður í gegnum rekstur á söludegi en hinum hlutanum frestað í því formi að hann er færður til lækkunar á leigueigninni sem leiðir til lægri afskrifta yfir samningstímann. Endanleg hlutföll hafa ekki verið að fullu staðfest og því geta forsendur breyst. Samhliða var gerður langtímaleigusamningur, sem tryggja mun áframhaldandi aðgang félagsins að hinum óvirku farsímainnviðum. Allur virkur farsímabúnaður verður áfram í eigu Sýnar hf,“ segir í tilkynningu til Kauphallar vegna síðarnefndu sölunnar.

Vísir er í eigu Sýnar hf.

Fréttin hefur verið uppfærð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×