Innlent

Sex greindust innanlands og tveir utan sóttkvíar

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Tveir voru utan sóttkvíar.
Tveir voru utan sóttkvíar. Vísir/Vilhelm

Sex greindust með kórónuveiruna í gær og voru fjórir þeirra í sóttkví. Einn greindist á landamærunum í gær en sá hafði dvalið á sóttkvíarhótelinu.  Hann var fluttur í farsóttahúsið vði Rauðarárstíg eftir að niðurstöður lágu fyrir. 

Í tilkynningu frá almannavörnum segir að verið sé að rekja þau smit sem voru utan sóttkvíar í gær og að sú rakning gangi vel. Í uppfærðum tölum á covid.is kemur fram að 174 séu nú í sóttkví og 124 í einangrun. Einn er á sjúkrahúsi. 165 eru á sóttkvíarhótelinu við Þórunnarstíg. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×