Þá verður rætt við sóttvarnalækni, sem segir sérkennilegt að þurfa að svara fyrir reglugerð heilbrigðisráðuneytisins. Hann skilaði inn kröfugerð sinni til héraðsdóms í morgun vegna gesta sóttkvíarhótelsins sem segja að um sé að ræða nauðungarvistun og rkefjast þess að sóttkvínni á hótelinu verði aflétt tafarlaust.
Við tökum einnig stöðuna í Geldingardölum en svæðið verður opnað að nýju í hádeginu eftir tveggja daga lokun. Nístingskuldi er hins vegar á svæðinu og varhugavert gæti að fara með ung börn í slíkar aðstæður.
Þetta og margt fleira í hádegisfréttum Bylgjunnar klukkan tólf.