Hvert ár hittast fyrrum sigurvegarar Masters-mótsins og borða mat sem sigurvegari ársins á undan hefur valið. Hefðin nær aftur til ársins 1952 þegar Ben Hogan stofnaði Meistara-matseðilinn. Var hann ætlaður fyrrum sigurvegurum og heiðursmeðlimum Clifford Roberts og Bobby Jones.
Síðan þá hefur matseðillinn verið jafn fjölbreyttur og sigurvegarar mótsins. Tiger Woods bauð til að mynda upp á ostborga og mjólkurhristinga. Þá var til að mynda boðið upp á haggis – skoskt lostgæti – árið 1989. Tiger verður ekki með á mótinu í ár.
20 years after the famous Tiger Slam, Woods absence looms, but his legacy is undeniably present. #themasters pic.twitter.com/sz4kthxbqt
— The Masters (@TheMasters) April 5, 2021
Eins og áður sagði hefur sigurvegari mótsins venjulega ár til að undirbúa matseðilinn. Dustin var þó lítið að stressa sig á því að hafa aðeins fjóra mánuði til að undirbúa sig.
Undirbúningur hans fólst einungis í því að skrifa matseðilinn niður og nokkuð ljóst að Johnson var löngu búinn að ákveða hvað hann myndi bjóða upp á þegar hann myndi loks fá að velja Masters-matseðilinn.
Matseðill Dustins Johnson er í hefðbundnari kantinum. Í forrétt er boðið upp á svín í teppum, humar og „corn fritters.“ Svo er salat hússins eða Ceasar-salat. Meðlæti er kartöflumús og grænmeti. Í aðalrétt er nautakjöt [filet mignon] og maríneraður hafbarri. Að lokum er ferskjubaka eða eplakaka með vanilluís.
Johnson sett met er hann vann Masters í nóvember á síðasta ári. Hann lék á 20 undir pari eftir að hafa farið fyrsta hring á 65 höggum, annan hring á 70 höggum, þriðja hring á 65 höggum og að lokum fjórða hring á 68 höggum.
Masters-mótið í golfi hefst á fimmtudag og verður sýnt beint frá mótinu á Stöð 2 Golf.