Lacazette sá um botnliðið Arnar Geir Halldórsson skrifar 11. apríl 2021 20:12 Naut sín vel með fyrirliðabandið. vísir/Getty Arsenal átti ekki í teljandi vandræðum með botnlið Sheffield United í síðasta leik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni. Arsenal lék án Pierre Emerick Aubameyang og Martin Ödegaard í dag en það tók Arsenal rétt rúman hálftíma að finna leiðina í gegnum þéttan varnarmúr heimamanna. Þar var að verki franski sóknarmaðurinn Alexandre Lacazette sem skoraði eftir flotta sókn. Gabriel Martinelli var í byrjunarliði Arsenal í kvöld í fyrsta skipti í langan tíma og hann tvöfaldaði forystuna á 71.mínútu. Lacazette kórónaði svo fína frammistöðu sína með sínu öðru marki og þriðja marki Arsenal á 85.mínútu. Lokatölur 0-3 fyrir Arsenal. Enski boltinn