Innlent

Einn greindist í gær og var í sótt­kví

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
visir-img
Vísir/Vilhelm

Einn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær. Viðkomandi var í sóttkví.

Þetta staðfestir Hjördís Guðmundsdóttir, samskiptastjóri Almannavarna, í samtali við Vísi og vísar til bráðabirgðatalna.

Þá greindist einn á landamærunum en ekki liggur fyrir hvort um er að ræða virkt smit.

Covid.is, upplýsingasíða almannavarna og landlæknis um framgang kórónuveirufaraldursins hér á landi, er ekki uppfærð um helgar. Nánari upplýsingar um fjölda sýna, nýgengi og aðrar ítarlegar upplýsingar verða því aðgengilegar á vefnum klukkan ellefu á mánudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×