„Ég hef ekki tíma“ Rakel Sveinsdóttir skrifar 23. apríl 2021 07:01 Mörgum líður eins og það sé aldrei tími til að sinna þeim verkefnum sem okkur langar mest til að sinna. En þá er um að gera að nýta sér einföld en góð ráð, til að læra að búa til þennan tíma. Vísir/Getty „Ég hef ekki tíma.“ Við höfum öll hugsað þetta. Mörg okkar sagt þetta upphátt. Kapphlaupið, stressið og það hversu fljótt tíminn líður gerir það hreinlega að verkum að okkur tekst engan veginn að gera allt sem okkur langar til að gera. Eða þyrftum að gera. Hvað þá verkefni sem kalla á næði, sköpun, hugmyndarflug…. Hver hefur tíma í þann lúxus?
Staðreyndin er þó sú að það er alltaf til tími. Fyrir allt. Það sem við þurfum að gera er að læra hvernig við búum hann til! Enda höfum við öll tekið eftir því að sumt fólk virðist geta gert ótrúlega margt; Vinnur fulla vinnu, sinnir maka, börnum og heimili, ræktar vinskap við vinina og sín eigin áhugamál. Hvernig fer þetta fólk að þessu öllu? Jú, það hefur lært hvernig það býr til tímann. Hér eru þrjú einföld atriði sem geta skipt sköpum. 1. Tímastilltu verkefnin Leið til að búa til nýjan tíma, er að takmarka þann tíma sem önnur verkefni fá. Í staðinn fyrir að búa einungis til verkefnalista yfir það sem þú ætlar þér að gera í dag, tekur þú ákvörðun um það klukkan hvað og hversu langan tíma hvert verkefni fær. Sérstaklega er mælt með því að fólk fækki þeim mínútum sem að öllu jöfnu fara í samfélagsmiðlana, að vafra á netinu eða fækki sjónvarpsmínútum um nokkrar mínútur á kvöldin og um helgar. Velji þess í stað að gera eitthvað skapandi. 2. Nýttu gleðina og tilhlökkunina Einn besti drifkrafturinn sem við búum yfir er gleði. Þennan eiginleika eigum við að nota oftar til að búa okkur til tíma til að gera fleiri hluti sem okkur langar til að gera. Til dæmis eitthvað skapandi eða í næði. Í stað þess að hugsa ,,ég hef ekki tíma,“ eigum við að hugsa ,,ég hlakka svo til þegar að ég kemst í þetta.“ Þannig nýtum við gleðina og tilhlökkunina til að halda okkur við efnið og þá dagskrá sem við höfum búið okkur til með því að takmarka tíma sem ýmiss önnur verkefni fá. 3. Veldu einfaldleikann Að skapa, að gefa sér tíma til að hugsa, hugleiða eða fá nýjar hugmyndir, hafa svigrúmið til að setjast niður og skrifa niður markmiðin okkar eða drauma….. allt eru þetta verkefni sem okkur langar mörgum til að gera en gefum okkur ekki tíma til. Vegna þess að við trúum því að tíminn sé ekki til! En til viðbótar við fyrstu tvö atriðin, er gott að byrja á því að taka ákvörðun um eitthvað sem þú ætlar þér að gera en hafa það mjög einfalt. Því um leið og við ætlum okkur of stór skref eða of margt í einu, aukast líkurnar á því að við gefumst upp og allt verður eins og áður. Ímyndum okkur til dæmis að þú viljir setjast niður og gefa þér góðan tíma í að skrifa niður helstu markmiðin þín. Í staðinn fyrir að byrja á því að búa til tólf mánaða plan, gætir þú byrjað á því að gefa þér tíma til að sinna markmiðalistanum fyrir eina viku í senn. Og áður en þú veist af, hefur þú búið þér til tíma til að sinna þessu verkefni í næði, ert farinn að fylgja því eftir í hverri viku og jafnvel farinn að búa þér tíma til að gera ýmislegt annað sem þú telur í dag að „þú hafir ekki tíma til að gera.“
Góðu ráðin Tengdar fréttir Leið til að hætta ekki við góðar hugmyndir Langar þig að stofna þinn eiginn rekstur? Eða ertu með einhverja góða hugmynd fyrir vinnuna, sem þú þorir ekki að velta í framkvæmd? Hér rýnum við í það hvað getur verið að aftra fólki frá því að fylgja hugmyndum eftir. 6. febrúar 2020 12:00 Góð ráð til að sporna við „ofhugsunum“ Að ofhugsa eða verja óendanlegum tíma í að greina hluti og kryfja þá er vandamál sem margir kannast við. Heilu dagarnir geta farið í þessar hugsanir, sem þó leiða oft ekki til neinna lausna. 31. mars 2021 07:00 Fimm einkenni rafrænnar þreytu sem allir þurfa að taka alvarlega „Þó að rafræn samvera geti sannarlega gert okkur nánari, getur hún einnig orðið til þess að við finnum fyrir meiri einangrun. Þegar við verjum mörgum klukkustundum á viku á Teams-fjarfundum eða Zoom-fyrirlestrum getur það leitt til rafrænnar þreytu,“ segir Ingrid Kuhlman framkvæmdastjóri Þekkingarmiðlunar. 23. febrúar 2021 07:00 Leiðir til að lifa af leiðinlegt föstudagssíðdegi Það kannast margir við það að fljótlega eftir hádegi á föstudögum er hreinlega ekkert að gera í vinnunni annað en að bíða eftir því að klukkan verði fjögur eða fimm. 17. júlí 2020 10:00 Frestunaráráttan: Að komast út úr vítahringnum Stundum er frestunarárátta meðfædd en oft er hægt að vinna sig út úr þeim vítahring að fresta sumum hlutum ítrekað segir Arnar Sveinn Geirsson verkefnastjóri hjá Auðnast. Við fáum samviskubit og líður illa ef við festumst í vítahring frestunaráráttu. 13. febrúar 2020 12:00 Mest lesið Flytur fyrirtækin vegna löggjafar um trans börn Viðskipti erlent „Það er verið að ríkisvæða húsnæðismarkaðinn“ Viðskipti innlent „Sérkennileg“ hækkun íbúðaverðs á tímum hárra vaxta Viðskipti innlent Leggja upp laupana í Lundúnum Viðskipti innlent Áföstu tapparnir stóðust ekki gæðapróf Neytendur Fasteignakaup fjárfesta vísbending um að fasteignaverð haldi áfram að hækka Viðskipti innlent Leiguverð heldur áfram að hækka Viðskipti innlent Taylor Swift talin valda verðbólgu í Bretlandi Viðskipti erlent Umferðarofsi stofnar vegfarendum í hættu Samstarf Annað tilboð borist í Skagann 3X Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ævintýralegt líf: Fjárfestirinn bankaði á gluggann á garðkofanum þar sem hann bjó „Ég var búinn að heyra stríðssögur um hvað fyrstu mánuðirnir væru erfiðir“ Að nálgast starfsmann sem líður illa, er reiður eða leiður Nýr 40/40 listi: „Spenntur að sjá hvað þetta fólk gerir í framtíðinni“ Betra en ekki að viðurkenna mistökin Sjálfbærniskólinn: Mörg fyrirtæki að gera geggjað góða hluti án þess að átta sig á því Sjálfbærniskólinn opnar: Reglugerðin mun líka hafa áhrif á lítil og meðalstór fyrirtæki Hafa þróað kerfi til að auka á gagnsæi viðskipta með kolefniseiningar „Hef ítrekað verið ásakaður af eiginkonunni að vera morgunfúll“ Óöryggi, feimni og jafnvel einmanaleiki í nýju sumarvinnunni Hámarkstími fullorðinna í símanum og góð ráð „Krakkar sem gistu hjá okkur vissu ekki hvað var að gerast!“ Níu manns sagt upp hjá Veitum Leiðtogakulnun: Þegar yfirmaðurinn er alveg búinn á því Að sækja um starf eftir uppsögn Hefur óeðlilega þörf fyrir að strauja allt frá skyrtum í barnasamfellur Að standa upp til að gera eitthvað og muna síðan ekkert hvað það var „Orðið var við aukna umræðu um að vinnan eigi ekki að valda álagi“ Ekkert einkamál: Áhrif vinnustaða á geðheilsu jafn stór og makans „Þú varst aumingi ef þú fórst á hausinn en glæpamaður ef þú græddir“ „Katrín Olga, þetta er eingöngu hálftími af þínu lífi“ Sjá meira
Leið til að hætta ekki við góðar hugmyndir Langar þig að stofna þinn eiginn rekstur? Eða ertu með einhverja góða hugmynd fyrir vinnuna, sem þú þorir ekki að velta í framkvæmd? Hér rýnum við í það hvað getur verið að aftra fólki frá því að fylgja hugmyndum eftir. 6. febrúar 2020 12:00
Góð ráð til að sporna við „ofhugsunum“ Að ofhugsa eða verja óendanlegum tíma í að greina hluti og kryfja þá er vandamál sem margir kannast við. Heilu dagarnir geta farið í þessar hugsanir, sem þó leiða oft ekki til neinna lausna. 31. mars 2021 07:00
Fimm einkenni rafrænnar þreytu sem allir þurfa að taka alvarlega „Þó að rafræn samvera geti sannarlega gert okkur nánari, getur hún einnig orðið til þess að við finnum fyrir meiri einangrun. Þegar við verjum mörgum klukkustundum á viku á Teams-fjarfundum eða Zoom-fyrirlestrum getur það leitt til rafrænnar þreytu,“ segir Ingrid Kuhlman framkvæmdastjóri Þekkingarmiðlunar. 23. febrúar 2021 07:00
Leiðir til að lifa af leiðinlegt föstudagssíðdegi Það kannast margir við það að fljótlega eftir hádegi á föstudögum er hreinlega ekkert að gera í vinnunni annað en að bíða eftir því að klukkan verði fjögur eða fimm. 17. júlí 2020 10:00
Frestunaráráttan: Að komast út úr vítahringnum Stundum er frestunarárátta meðfædd en oft er hægt að vinna sig út úr þeim vítahring að fresta sumum hlutum ítrekað segir Arnar Sveinn Geirsson verkefnastjóri hjá Auðnast. Við fáum samviskubit og líður illa ef við festumst í vítahring frestunaráráttu. 13. febrúar 2020 12:00